Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Síða 56
56 TMM 2012 · 1
Guðmundur Brynjólfsson
Fréttabréf úr sveitinni
Maðurinn sem stal sjóðnum úr Kaupfélaginu er nú hundeltur um allt
Norðurland. Það hefur sést til hans á Blönduósi og á Hvammstanga.
Sveitasíminn logar, karlinn sem stal sjóðnum úr Kaupfélaginu og skildi
allt eftir í rúst er eftirlýstur um land allt. Hann var á Akureyri í nótt og
sá kann nú ekki að skammast sín því hann át á Bautanum í gærkvöldi.
Sveitasíminn logar og gott ef það er ekki farið að skrifa um þetta – ekki
bara í Héraðsfréttablaðinu heldur í Morgunblaðinu líka. Hreppsnefndin
rekur flóttann, að eigin sögn, en hún fundar nú víst eitthvað lítið og þá
sjaldan það er, þá er það gamla þrefið um hurðina á samkomuhúsinu.
Þeir láta víst ógert að rifja upp að þeir fengu djöfsa til að reka Kaup-
félagið og svældu skólastjórann út úr skólastjórabústaðnum svo þessi
skrattakollur mætti hafa huggulegra húsnæði. Sóknarnefndin – sem
vel að merkja er hér sama nefnd og hreppsnefndin – fékk hann svo í
ofanálag til að passa upp á Orgelsjóðinn. Það hefur spurst að hann sé nú
jafn tómur og Kaupfélagssjóðurinn. En samt er nú gaman að lifa hérna í
sveitinni, það er spenna í fólkinu, það er tilbreyting í umtali og hugsun.
Það sást til kauða austur á Egilsstöðum, hann fór þar hratt í gegn. Tók
bensín og hann má eiga það að hann borgaði fyrir það. Hann dældi
sjálfur, er sagt. Lögreglan sá til hans en lét hann eiga sig, vildi síður
taka hann innanbæjar er haft eftir þeim þarna fyrir austan. Hrepps-
nefndin kom saman í gær og samþykkti einróma ályktun um að styrkja
kvenfélagið svo það geti endurnýjað leirtauið í samkomuhúsinu, þegar
betur árar. Hann er kominn niður undir Djúpavog, hann símaði suður
af sveitabæ þar skammt frá – hann segist ekkert stoppa fyrr en í Vík.
Fólk er hneykslað á þessu. Skilur ekkert í því að maðurinn skuli komast
upp með þetta. Hreppsnefndin sem seldi af höndum sér, og okkar,
hitaveituréttindin í Skarðinu er ekki minna hneyksluð. Hann stoppaði
ekkert í Vík. Það var tóm lygi. Eins og allt hitt. Fólkið er að ærast hérna.
Hreppsnefndin fundar ekki neitt og gerir ekki neitt og hverjum er ekki