Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 46
B r y n j a Þ o r g e i r s d ó t t i r 46 TMM 2012 · 2 og kúgaða. Abba var óvelkomin í heiminn vegna fötlunar sinnar. Því er lýst í verkinu hvernig Downs­börnum var fyrirkomið strax við fæðingu. En alltaf komust einhver svona mislukkuð fóstur á legg: Það gerðist í guðsvoluðum útnárum þar sem enginn gat haft vit fyrir mæðrum sem héldu að þær hefðu í fullu tré við börnin, þótt furðuleg væru. […] Höfðu bændur mikinn ama af þessum „himnasendingum“ en heimilisfólkinu þótti niðurlægjandi að deila baðstofu með vanskapnaði. (Sjón, 2003a, bls. 70–71) Írónían varðandi himnasendinguna er tvöföld – orðið Abba merkir nefnilega himneski faðir eða guð, og það ásamt fleiru í sögunni vekur þá hugsun að líta megi á Öbbu sem einhverskonar himneska eða guðlega veru. Ummyndun Öbbu er kyrr, virðingarfull og hljóðlát. Henni er ekki lýst nákvæmlega fyrir lesandanum heldur er hún gefin í skyn, og hún felur í sér katasterisma; ummyndun í stjörnu eða stjörnumerki. Samkvæmt forn­ grikkjum felur slík ummyndun í sér mikinn heiður, upphafningu og burtför úr heimi þjáningar yfir á himneskan stað – á sjálfa kórónu himins (Hansen, 2005). Í gríska goðsagnaheiminum urðu öll stjörnumerkin á himninum til vegna slíkar upphafningar guðanna á dauðlegu fólki eða dýrum. Ein þekktasta umbreytingin í stjörnu í Ummyndunum er breyting Kallistó í stjörnumerkið ursa maior eða Stóru birnu. Stundum fylgir katasterisma hreinlega upphafning í guðatölu, eða apotheosis (Theodorokopoulus, 1999). Það er í lokabókum Ummyndana Óvíðs sem nokkrar slíkar ummyndanir verða. Allra síðasta ummyndun verksins felst í umbreytingu Júlíusar Sesars í stjörnu; Venus ber glóandi og logandi sál hans í fanginu upp í himininn og „ofar tungli steig sálin upp og skildi eftir sig eldslóða og tindrar nú sem himintungl“ (Ovidius, 2009, bls. 432). Ummyndun Öbbu verður þannig að Friðrik býr hinni kæru vinkonu sinni persónulega og hjartnæma greftrun í kyrrþey. Hann færir hana í vönduð spariföt og leggur hana í listavel gerða líkkistu sem Sölvi Helgason smíðaði af hagleik og gaf henni. Á kistubotninum eru tvær tilvitnanir í skáldið Óvíð, annars vegar úr Ummyndunum: „omnia mutantur, nihil interit“ (Metamorphoses 15.165) sem útleggst „allt breytist, ekkert eyðist“, og hinsvegar úr ástarelegíum Óvíðs: „sú byrði er létt sem vel er borin“, eða „leve fit, quod bene fertur, onus“ (Amores I.2,10). Á brjóst Öbbu leggur hann fuglabókina hennar og leikur svo á flautu stefið úr „Dauða næturgalans“ eftir Schubert. Þá fyllast augu Friðriks loksins af tárum: Þau renna af stað niður kinnarnar en þorna á miðri leið; það er kalt úti. Og hann kveður Hafdísi Jónsdóttur með sömu orðum og hún kvaddi hann: – Abba­íbó!2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.