Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 113
TMM 2012 · 2 113 Ástráður Eysteinsson Ég sem er enn að myndast Um skáldið Jónas Þorbjarnarson Hvar endar maður? Áttunda ljóðabók Jónasar Þorbjarnarsonar nefnist Tímabundið ástand og birtist árið 2008. Þar er að finna ljóðið „Alpaþorp“ og í upphafsorðum þess segir af kúm er „ber við himin“ upp af þorpi þar sem „gaurinn / útá verönd síðla dags er ég“: en orðið ég (á stærð við kaffibaun) hefur ekki afgirta merkingu ég er ástand sem nú verður ekki aðgreint frá fjallasal, síðdegi, árnið og hæð með kúm efst Hinar himinbornu (heilögu?) kýr og „ég“ skáldsins á stærð við kaffibaun, einmitt í Ölpunum þar sem skáld rómantíkurinnar áttu sínar háleitustu stundir: Þetta er spaugileg sviðsetning, enda bjó Jónas yfir drjúgri kímni sem hann hleypti fram í sumum ljóða sinna. En í þessum línum birtist einnig það viðfangsefni sem Jónas glímdi alla tíð við af alvöru og ástríðu, tilvistarspurning sem er öðrum þræði heimspekileg en skáldið varpar fram á ýmsan hátt og í mörgum ljóðum – spurning sem lúrir kannski undir niðri hjá flestum. Þessa spurningu hafði Jónas raunar gert að titli næstu bókar á undan: Hvar endar maður? sem kom út 2005. Hvar tekur umhverfið við, annað fólk, hlutirnir, tómarúmið? Eða er þetta allt hluti af manni, innan marka sjálfsins jafnt sem utan? Eins og segir í næstu línum „Alpaþorps“: „ég er samsafn líkt og heimurinn / það ægir öllu saman / hugsunum, landslagi, kúm, þær streyma / kýrhægt niður“ en svo dimmir og ekkert er eftir „af fjallasalnum stóra / nema árniður, trjályktin, ein og ein hugsun“.1 Þessi spurning brann ekki aðeins á Jónasi í þeim skilningi sem einkennir öll staðarskáld – skáld sem skyggnast eftir því hvernig maður og staður tengjast (eða tengjast ekki) – heldur á hún einnig við um þá áleitnu for­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.