Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 12
S t e i n d ó r J . E r l i n g s s o n
12 TMM 2015 · 3
hugmyndafræði.22 Rithöfundurinn hefur hins vegar engan áhuga á þessari
útgönguleið heldur er það spurningin um raunverulegt sjálfsvíg sem heillar
hann.23 Niðurstaða Camus er sú að þrátt fyrir að við búum í merkingar-
lausum heimi sé sjálfsvíg aldrei réttlætanlegt. Í því sambandi biður Camus
lesandann um að ímynda sér Sisyfos, sem dæmdur var af grísku guðunum til
að ýta stórum steini aftur og aftur upp fjallshlíð að eilífu, hamingjusaman.24
Forsenda niðurstöðunnar er auð vitað geta einstaklingsins til að lifa sáttur í
þessum heimi. En hvað með þá sem ekki geta framið heimspekilegt sjálfsvíg
og lifa því ósáttir í þögulli veröld?
Levi
Ítalski gyðingurinn, efnafræðingurinn og rithöfundurinn Primo Levi (1919–
1987) upplifði um ellefu mánaða skeið fjarstæðu heimsins á versta stað sem
mannkyn hefur búið til, Auschwitz. Hann gerði reynslunni skil í tveimur
aðdáunarverðum bókum, Se questo è un uomo (Sé þetta maður, 1947) og
La Tregua (Vopnahléð, 1963). Eins og Levi benti á, ári fyrir andlát sitt, var
hann guðlaus við komuna í búðirnar og yfirgaf þær án nokkurrar guðstrúar.
Raunar staðfesti reynslan vantrúna, enda vandfundið svar við spurningum
eins og: „Af hverju voru börnin send í gasið?“25 Þrátt fyrir þetta staðhæfir Levi
að hinum trúuðu hafi vegnað betur í búðunum en skoðanabræðrum hans.
Trúin sem valin var til þess að fremja eða viðhalda hinu heimspekilega
sjálfsvígi skipti ekki máli, eins og Camus benti á 44 árum áður. Kaþólikkar,
zionistar, marxistar, vottar jehóva, „allir áttu sameiginlega bjargfasta vissu
um mátt trúar sinnar. Alheimur þeirra var víðfeðmari en okkar, útbreiddari
í tíma og rúmi, umfram allt skiljanlegri.“ Galdur þeirra lá, að mati Levis,
í sæluríki morgundagsins, sem réttlætti fórnir einstaklinganna, „staður í
himnaríki eða á jörðu niðri þar sem réttlæti og samúð höfðu yfirhöndina,
eða myndi fara með sigur af hólmi jafnvel í fjarlægri en öruggri framtíð:
Moskva, eða jarðnesk eða himnesk Jerúsalem“.26 Heimspekileg svartsýni
Levis27 kom í veg fyrir að hann gæti nýtt sér veraldlegar útópíur samferða-
manna sinna.
Innsæi Levis hefur á undanförnum tuttugu og fimm árum endurtekið
verið staðfest í rannsóknum sem tengjast tilvistarkenningu innan félags-
sálfræðinnar.28 Hér er um að ræða kenningu sem á ensku heitir Terror
Management Theory, og felur í sér að árangursrík stjórnun á hræðslunni og
óörygginu sem fylgir lífi hverrar manneskju sé „trú á merkingu menningar-
legrar heimsmyndar og vissa fyrir því að maður sé verðmætur þátttakandi
í þessum merkingarbæra heimi“.29 Auk trúarbragða og annars konar hug-
myndafræði þá virðast vísindi falla undir þennan hatt.30 Með því að tengjast
þessum heimsmyndum byggir einstaklingurinn upp sjálfstraust sem heldur
„kvíða og öðrum neikvæðum tilfinningaviðbrögðum (þunglyndi, svartsýni,
einmanaleika og árásargirni) lengra í burtu frá meðvitundinni.“31 Það þarf