Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 108
G u ð m u n d u r S . B r y n j ó l f s s o n 108 TMM 2015 · 3 fylgir lífinu og loks skynjar hann dauðann. Hann kemur að dauðanum í lokin eins og dauðinn sé lokaerindi þess sem Guð sendir út í heiminn. Og sem snöggvast má ímynda sér að þetta sé afstaða Thors, en svo er ekki því að listin veit á áframhaldandi líf. Hún býr yfir sama guðlega mættinum og orðið; hún er mystísk. Í hugleiðingum sínum um tungumálið og miðlun þess heldur Walter Benjamin inn á mystískar brautir tvíhyggjunnar. Hann gengur út frá því að öll tjáning mannsins sé einskonar mál og hann gefur dæmi um slíkt, t.d. mál tónlistarinnar, höggmyndalistarinnar eða mál réttarkerfisins.20 Samkvæmt þessum skilningi eru áhrif Rembrandts á Thor mál listarinnar og málleysi Thors mál hrifningarinnar. Benjamin gengur svo langt að segja að ekkert sé, sem ekki eigi með einhverjum hætti hlut í málinu, því „að öllum er það eðlis- lægt að tjá hvað inni fyrir býr.“21 Að lokinni þessari staðhæfingu kemur afar mikilvægt innlegg. Hann segir: „Þessi notkun orðsins „mál“ er þó á engan hátt myndhverfing, því að það er fullkomlega skiljanlegt að við getum ekki ímyndað okkur neitt sem birtir ekki andlega eðlisveru sína í tjáningunni.“22 Þetta er með öðrum orðum staðreynd, sannleikur. Skýringin á því af hverju Benjamin tekur fram með svo afgerandi hætti að ekki sé um mynd- hverfingu að ræða er sú að undirlag kenninga hans um málið, bæði hið almenna og mál mannsins, er guðlegt. Hér er á ferðinni dulspeki sem getur verið erfitt að negla niður með áþreifanlegum hætti. Hér ræður hinn guð- legi stofn málsins, hann kallast á við hinn andlega heim í hugmyndafræði Platons eða hinn efsta guðlega heim gnóstanna. Og með sama hætti og í þeim æðstu guðlegu heimum þá er málið guðlegt verkfæri, notað ýmist til beinnar sköpunar eða myndunar goðsögunnar af sköpuninni. En af því að við iðkum málið í hinum illa heimi þá náum við ekki að skilja í sundur það sem er mállegt frá því sem er eðlislægt. Við búum yfir máli, það er partur sköpunarinnar. Um leið og málið er hluti sköpunarinnar er það þegið frá Guði – það er hluti þess grundvallar sem sköpunarsagan leggur undir manninn svo hann fái þrifist: „Sköpun Guðs fullkomnast við það að hlutirnir fá nafn sitt frá manninum, sem málið eitt talar úr: í nafninu.“23 En hér er ekki aðeins um að ræða nafnið sjálft, heldur er málið sem nafnið kemur úr samfélag sem, líkt og gyðingdómurinn (sem Benjamin er sprottinn úr), lítur til sköpunarinnar sem síns upphafs: „Hið óviðjafnanlega við mál mannsins er að dulmagnað samfélag þess með hlutum er óefnislegt og eingöngu andlegt og hljóðið er tákn fyrir það. Þessa táknrænu staðreynd nefnir Biblían þar sem hún segir að Guð hafi blásið í manninn lífsanda: það er lífi, anda og máli.“24 „Ég veit ekki hvernig ég á að tala um þessar myndir.“ Þannig er byrjunin á myndgreiningu Thors, upphafið. Þegar Thor nemur staðar við Rembrandt- myndirnar þá hefur hann ferðast í gegnum safnið, „ferðast um ólíkar aldir sögunnar sem birtust í yfirþyrmandi krystöllum sinna beztu anda“25 eins og hann kemst að orði. Og hann segist líka hafa reikað „klukkustundum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.