Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 9
„ L á t t u e k k i þ e s s a ö g n h l æ j a a ð þ é r“
TMM 2017 · 3 9
Kona fyrir austan sagði að ekki væri hægt að móðgast við Guð almáttugan
en ég svaraði henni að það gerði maður víst og hélt mínu striki.
Ég fór auðvitað við jarðarför móður minnar og söng með kirkjukórnum
á sumrin þegar ég var heima því pabbi var organisti og það vantaði alltaf
sópran í kórinn. En ég hlustaði ekki á prestinn, fór ekki með Faðir vor-ið eða
bænirnar mínar. Svo liðu árin.
Þegar börnin fæddust varð ég blíðari og mýkri og lagði stórmennskuna sem
hafði einkennt mig endanlega af. Fyrirmyndirnar Grundar Helga – sem lét
taka Smið hirðstjóra og Jón Skráveifu af lífi og er ein af sterku persónunum
hans Jóns Trausta – Hallgerður Langbrók og Bergþóra á Bergþórshvoli –
konur sem mæla ógleymanlega frasa og eru fylgnar sér – fóru niður af stall-
inum, ég tók Guð í sátt og bað bænir með krökkunum. Maðurinn minn var
utan kirkju og ég vildi ekki að krakkarnir ælust upp án þess að vita hver þessi
Gvöð væri. Nú erum við í þokkalega góðu sambandi.
Ertu félagsvera, einfari?
Félagsvera – hef alltaf verið.
En hvernig fer það saman við starfið?
Mér hefur oft fundist ég dáldið ein með blýantinum og ritvélinni og síðar
tölvunni. Ég byrjaði að skrifa með Iðunni systur – við skrifuðum saman
fjöldamörg leikrit í nokkur ár og það var skemmileg samvinna, okkur
sinnaðist aldrei – en allt í einu fannst mér líka gott að vera bara ein og skrifa.
Ég skipulegg vel tíma minn, vinn x margar stundir og hitti svo fólk.
Varstu pabbastelpa, mömmustelpa?
Ég var mömmustelpa.
Hafa foreldrar þínir haft áhrif á bækurnar þínar?
Afgerandi já, sögurnar sem mamma sagði okkur í eldhúsinu búa alltaf inni
í mér og hafa umbreyst með aldrinum og orðið að mínum – og ekki bara
sögurnar hennar heldur líka sögur ömmu minnar sem var gift verkamanni,
oftast atvinnulausum, átti fimm börn og vissi iðulega ekki hvað hún ætti að
hafa í matinn næsta dag – æðrulaus alla tíð, naumast hrukku að sjá á and-
litinu um áttrætt. Hún gengur aftur í mörgum bóka minna og leikritum. Hún
er til dæmis Guð almáttugur með æðahnúta, á peysufötum og silkisokkum
í bókinni Draugur í sjöunda himni.
***
Hvert er uppáhaldsorðið þitt?
Amma. Fyrir þrjátíu árum hefði ég sagt mamma.