Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 93
J a n e A u s t e n : Æ v i , á s t i r o g f r a m h a l d s l í f
TMM 2017 · 3 93
strákaleikjum, hefur enga tilfinningu fyrir kvenlegri iðju, eins og garðrækt,
hún er ekkert sérstaklega vinnusöm og hefur litla einbeitingu: „Hún hvorki
lærði né skildi nokkurn hlut án leiðsagnar og jafnvel ekki þá, því að hún tók
gjarnan illa eftir og var stundum hreinlega heimsk.“31 Hún nennir ekki að
læra á hljóðfæri, teiknar ekkert sérstaklega vel, er oft skítug og hávaðasöm
en hefur góða skapgerð, gott hjartalag og er vinaleg við börn. En á sextánda
aldursári verður loks breyting til batnaðar, hún verður kvenlegri og útlitið
ásættanlegra. Þegar meginatburðir sögunnar hefjast er hún „næstum því
sæt“.32 Í kjölfarið fer hún að lesa bækur sem búa hana undir hlutverk sitt
sem kvenhetju, en sem slík lendir hún reyndar fyrst og fremst í pínlegum,
skömmustulegum aðstæðum og gerir sig að fífli.
Í þessu felast einmitt megineinkennin í persónusköpun kvenhetjunnar í
skvísusögum. Algengt er að kvenhetjan sé á skjön við þann heim sem karl-
hetjan byggir, en þótt klaufaskapurinn, vandræðagangurinn og endalaus og
síendurtekin niðurlæging skvísunnar geri það að verkum að lesanda finnist
karlhetjan stundum yfir hana hafin þá er sú skýring einnig sett fram að hún
sé ómótstæðileg vegna þess hversu opin, fjörug og lífleg hún sé. Mark Darcy
viðurkennir sjálfur að Bridget sé engri lík: „Bridget, allar aðrar stúlkur sem
ég þekki eru svo tilhafðar og lakkaðar. Ég þekki enga aðra sem myndi næla
kanínuskott á nærbuxurnar sínar“.33 Þessi orð karlhetjunnar kallast á við
samræður Elísabetar og herra Darcy þegar þau eru nýlofuð þar sem hún spyr:
„Vertu nú hreinskilinn, varðstu hrifinn af því hvað ég var ósvífin?“ Herra
Darcy svarar: „Ég varð hrifinn af því hvað þú varst fjörug.“34
Kvenhetjur Austen eru flestar sterkar, sjálfstæðar konur sem láta ekki
beygja sig eða stýra sér; konur sem vita hverjar þær eru og hvað gerir þær
hamingjusamar. Þvert á óskafyrirmyndina eru kvenhetjur skvísusagna með
sjálfsmyndarbrest, ósáttar við sjálfar sig og karlmennina í lífi sínu, óánægðar
með útlitið og/eða líkar illa í vinnunni. Sumar kljást við allt þetta. Eins og
Naomi Wolf bendir á í The Beauty Myth hafa konur í samtímanum meiri
peninga, meiri völd, fleiri tækifæri og meiri lagalega viðurkenningu en
nokkru sinni fyrr, en vegna þess hve illa þeim líður vegna líkama síns og