Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Side 23

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Side 23
Þ r í r M á r a r TMM 2017 · 3 23 réttlætið sjálft að sundurmölva sverðið? Einn enn, einn enn. Ó, liggðu svona liðin, þá skal ég deyða þig og dýrka síðan. Einn enn – þann hinzta; aldrei var svo ljúffengt svo fullt af eitri! – Ó, ég hlýt að gráta, en grimmum tárum, það er guðleg sorg, sem agar þann hún elskar. – Hún er vöknuð.3 Helgi: Ó, það er sökin, það er sökin, sál mín, sú sök skal ekki nefnd, þið hreinu stjörnur, ef það er sökin. Þó skal ekkert blóð streyma, né rispuð hennar bjarta húð, hvítari en mjöll og mjúk sem alabastur. Hún deyr samt, ella dregur fleiri á tálar. Nú er að slökkva ljósið, síðan – ljósið! ef ég slekk þig, þú litli bjarti logi, þá get ég kveikt þitt glaða ljós að nýju, skyldi mig iðra. En ef ég slekk þitt ljós, þú náttúrunnar vænsta snilldar-verk, hvar næði ég þeim neista Prómeþeifs, sem tendrar þitt ljós aftur? Ef ég slít þína rós, fær hún aldrei aftur líf; hún visnar. Ó, þú ilmar enn á grein. (Hann kyssir hana) Angan svo fersk, að freistar réttvísinnar að brjóta sverð sitt! Einn enn; vertu eins meðan þú deyrð; þá mun ég bana þér og elska síðan. Enn einn, nú þann hinzta. Aldrei var ljúft svo banvænt. Já, ég græt; en það er grimmur grátur, himnesk sorg, sem slær það sem hún elskar. Ó, hún vaknar.4 Hallgrímur: Já, þetta’er málið, þetta’er málið, sál mín – sem ég mun ekki minnast á við ykkur, skírlífu stjörnur. Þetta er þó málið. Samt mun ei blóði hennar úthellt verða né mun ég skaða mjallahvíta húð sem slétt og mjúk er eins og minnisvarði. – Samt skal hún deyja, annars fleiri svíkur. Já. Slökkva ljósið. Og svo slökkva ljósið. Slökkvi ég þig, þú litli logaþjónn, þá get ég aftur kveikt þitt ljós á ný snúist mér hugur, en ef slekk ég þitt, þú náttúrunnar glæsta græskuverk, ég veit ei hvar sá guðalogi finnst sem endurtendrað gæti. Sé tínt þitt blóm
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.