Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 36
36 TMM 2017 · 3
Halldór Guðmundsson
Lærdómar af trylltri öld
– um fræðimanninn Timothy Snyder
Sittu ekki hjá, eru kjörorð bandaríska sagnfræðingsins Timothy Snyder,
lærðu af sögunni. Nánar tiltekið 20. öldinni, öld öfganna sem breskur starfs-
bróðir hans Eric Hobsbawm kallaði svo, þessari skammlífu öld sem hófst með
fyrri heimsstyrjöldinni 1914 og lauk með falli múrsins og ósigri kommún-
ism ans 1989. Með fyrri heimsstyrjöldinni var endi bundinn á langt friðar-
tímabil í Evrópu og nývakið lýðræðið beið fullkominn ósigur, uppgangur
fasisma og nasisma fylgdi í kjölfarið. Með múrnum hrundi einræðiskerfi sem
hafði reynst langlífara miklu en það þjóðskipulag sem fasisminn mótaði. En
sú skoðun að þar með hefði lýðræðið á Vesturlöndum unnið endanlegan og
óafturkræfan sigur, að við værum nánast komin að endimörkum sögunnar,
hefur líka beðið skipbrot, eins og blasir æ betur við okkur þessi misserin.
Að dómi Snyders – sem er einn af gestum Bókmenntahátíðar í Reykjavík
í haust – er þeim mun mikilvægara fyrir okkur að draga lærdóma af sögu
20. aldar sem hættan á harðstjórn verður meiri. „Lýðræðið brást í Evrópu á
þriðja, fjórða og fimmta áratugnum, og það er að bregðast núna, ekki aðeins
í stórum hluta Evrópu heldur víða um heim. Sú saga og reynsla birtir okkur
skuggahliðarnar á hugsanlegri framtíð okkar“, segir í nýrri bók hans, On
Tyranny, Um harðstjórn (New York, 2017, bls. 114). Bókin hefur undirtitilinn
„Tuttugu lærdómar af tuttugustu öldinni“ og fjallar í skýrum og stuttum
köflum um það sem við getum gert til að koma í veg fyrir að lýðræðið bíði
ósigur á ný. Snyder er andsnúinn öllu tali um óhjákvæmilega framvindu
sögunnar, lýðræðissinnar á Vesturlöndum geta brugðist við hættum og við
getum haft áhrif, hvert og eitt, því annars er niðurstaðan einföld: „Ef ekkert
okkar er reiðubúið til að deyja fyrir frelsið, þá munum við öll láta lífið undir
harðstjórn“ (bls. 115).
Bókin Um harðstjórn er rösklega 120 blaðsíðna pólitísk ritgerð sem
kom út í febrúar á þessu ári og það fer ekki framhjá lesandanum að sigur
Trumps í forsetakosningunum bandarísku er kveikja hennar. Skömmu eftir
kosningarnar skrifaði Snyder á Facebook-síðu sína: „Bandaríkjamenn eru
B ó k m e n n t a h á t í ð