Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 87
J a n e A u s t e n : Æ v i , á s t i r o g f r a m h a l d s l í f
TMM 2017 · 3 87
úr bókmenntalífinu sagði: „Ég myndi gjarnan vilja vita hver höfundurinn er
því hún er alltof snjöll til þess að hafa verið skrifuð af konu.“9
Mansfield Park kom út 1814 og seldist einnig upp og fékk góðar viðtökur,
en söluhagnaður Jane af þeirri bók varð 350 pund. Í janúar 1814 hóf Jane
Austen að skrifa Emmu og sagði fjölskyldu sinni að í þessari skáldsögu væri
að finna „kvenhetju sem engum nema mér sjálfri mun líka sérstaklega vel
við.“10 Austen var ekki sátt við að Egerton vildi ekki prenta fleiri eintök
af Mansfield Park og því var fundinn annar útgefandi fyrir Emmu og var
það hinn þekkti útgefandi John Murray, sem var m.a. frægur fyrir að vera
útgefandi Byrons lávarðar. Fræg eru orð Jane Austen um Murray í bréfi:
„hann er að sjálfsögðu þrjótur, en hann er kurteis þrjótur.“11
Á þessum tíma var orðið erfitt að halda nafni Austen leyndu og margir
vissu hver hún var. Haustið 1815 frétti Austen að krónprinsinn, George
Augustus Frederick, sem stjórnaði landinu í veikindum föður síns George
III, væri hrifinn af verkum hennar og var henni boðið að hitta herra Clarke,
bókasafnsvörð prinsins í Carlton húsi, þar sem krónprinsinn hafði aðsetur.
Meðan á heimsókninni stóð tilkynnti herra Clarke Austen að henni væri
frjálst að tileinka prinsinum næstu skáldsögu sína sem hún og gerði. Sú
skáldsaga var Emma sem kom út 1816 prentuð í 2000 eintökum og var einnig
nafnlaus.12 Um þetta leyti var Austen komin langt með handritið af því sem
reyndist verða hennar síðasta skáldsaga, Persuasion.
Snemma árs 1816 byrjaði Austen að finna fyrir kvilla sem fór versnandi.
Læknar vissu ekki hvað amaði að henni og sérfræðingar eru enn ekki á eitt
sáttir um hvað dró hana til dauða. Sumir telja þó að hún hafi þjáðst af nýrna-
hettu-sjúkdóminum Addison, sem er mjög sjaldgæfur, á meðan aðrir segja