Milli mála - 2018, Blaðsíða 84
TARTUFFE Í SÖGU OG SAMTÍÐ
84 Milli mála 10/2018
Í öðrum umfjöllunum um sýninguna víkja gagnrýnendur lítið sem
ekkert að samfélagslegum og trúarlegum víddum leikritsins né
heldur hvernig þær voru túlkaðar í uppsetningunni.
Síðast var leikritið sett upp á Íslandi aldamótaárið 2000 í sam-
starfi Stúdentaleikhússins og Torfhildar, félags bókmenntafræði-
nema, undir handleiðslu kennara háskólanemanna í leikhúsfræðum,
Terrys Gunnel. Ólafur Egill Egilsson leikstýrði verkinu sem sýnt
var í sal Kaffileikhússins við Vesturgötu undir titlinum Platarinn.
Með helstu hlutverk fóru háskólanemarnir Bjartmar Þórðarson sem
lék Tartuffe og Hlynur P. Pálsson sem lék Orgon. Leikhópurinn
studdist við þýðingu Péturs Gunnarssonar en stytti allverulega
upphaf og endi verksins. Líkt og í uppsetningu Þórs Tulinius, hafa
stúdentarnir ætlað verkinu samfélagslega skírskotun. „Trúhræsnin
sem fram kemur í sýningunni á [...] vel við í dag,“ sagði Hlynur
P. Pálsson í viðtali við Morgunblaðið en Hlynur var einnig for-
maður Torfhildar. „Sölumennskan og afskræming trúarinnar, mis-
notkun hennar í þágu eiginhagsmuna er oddhvass ádeilubroddur í
sýningunni. Tartuffe laumar sér inn á heimili hinnar trúgjörnu fjöl-
skyldu og vélar frá henni allt. Slík græðgi í skjóli trúarinnar hefur
verið gegnumgangandi allar aldir.“68
Nú hefur Þjóðleikhúsið sett leikritið á dagskrá nýs leikárs. Loddarinn,
með Hilmi Snæ Guðnasyni og Guðjóni Davíð Karlssyni í hlut-
verkum þeirra Tartuffes og Orgons og Nínu Dögg Filippusdóttur
í hlutverki Elmíru, verður frumsýndur þann 27. apríl 2019 í
leikstjórn svissneska leikstjórans Stefans Metz og í nýrri þýðingu
Hallgríms Helgasonar. Þessi fimmta leikgerð gamanleiksins á
íslenska tungu verður í bundnu máli og hefur verkið þá verið þýtt
til skiptis á bundið og óbundið mál frá upphafi. Stefan Metz hefur
nokkrum sinnum áður sett upp leikrit í Þjóðleikhúsinu, meðal
annars tvö verk eftir Arthur Miller, Eldraunina árið 2014 og Horft
af brúnni árið 2016. Báðar þær sýningar vöktu athygli fyrir sterka
samfélagslega skírskotun.69 Það verður þess vegna fróðlegt að sjá
16 [sótt á timarit.is 5. nóvember 2018].
68 „Stúdentaleikhúsið sýnir Platarann í Kaffileikhúsinu. Svik og prettir Tartuffe“, Morgunblaðið, 24.
febrúar 2000, bls. 63 [sótt á timarit.is 14. nóvember 2018].
69 Trausti Ólafsson, „Leikhúsmál – fyrsti hluti“, Starafugl, 26. júní 2014, https://starafugl.is/2014/
leikhusmal-fyrsti-hluti/ og „Skuggar ásta, blóðs og hefndar. Miller í Þjóðleikhúsinu“, Starafugl, 1.