Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Page 20
18
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Ekki kunnugt um neinn smitbera í héraðinu.
Dala. Enginn grunur um smitbera.
Þingeyrar. t tilfelli (ekki skráð), aðflutt af aðkomuskipi. Einangrað.
Enginn smitaðist.
Blönduós. Kom fyrir í 3 skipti. í marz veiktist stúlka á Kálfsham-
arsnesi, og' var ég ekki sóttur til hennar fyrr enn seint á 2. sjúkdóms-
viku. Heimilið þegar einangrað, og' breiddist veikin ekki út þaðan, en
faðir stúlkunnar lag'ðist skömmu síðar, var leng'i veikur og' fékk eftir
veikina kronisk ileus-einkenni. Var hann síðar fluttur hing'að á
sjúkrahúsið, en var þá svo þróttlítill, að um kirurgiska meðferð var
ekki að tala, og veslaðist hann upp. Taugaveiki þessa mátti, eins og
vant er, rekja til frú M. S.-dóttur, því að stúlkan hafði þvegið hjá
henni þvott og tekið með í misgripum nærfatnað og sængurföt frú
M. sjálfrar, sem hún er annars vön að þvo sjálf. B. J.-son, bóndi að
Þverá í Hallárdal, sem ég gat um í síðustu ársskýrslu minni, að væri
smitberi, kom loks til uppskurðar seint á árinu. Þegar eftir að gall-
blaðran hafði verið úr honum tekin, fékk hann mikinn niðurgang', og'
vildi þá svo slysalega til, að vökukonan á sjúkrahúsinu smitaðist af
honuin og lagðist snemma í desember. Þetta fór allt saman vel, eftir
því sem um var að gera, því að rannsóknir á saur sjmdu, að B. hafði
læknazt, og vökukonan tók ekki við af honum sem smitberi.
Sauðárkróks. í héraðinu dvelja 2 konur, sem sannazt hefir að eru
taugaveikissmitberar, G. J.-dóttir, húskona hér á Sauðárkróki, ekkja,
50 ára, og G. J.-dóttir, ekkja í Bakkakoti, 66 ára. Hin þriðja, S. J.-dóttir,
frá Sölvanesi, sem grunur lék á, að væri taugaveikissýkilberi, dó á
árinu.
Svarfdæla. Taugaveiki kom upp í Hrísey, fyrst í fjölskyldu fátæks
manns með fjölda barna í léleg'ri kjallaraíbúð. Veiktist þar fyrst
piltur á tvítugs aldri rétt fyrir áramótin. Sá héraðslæknir hann á nýj-
ársdag, er hann var á ferð í eynni vegna annars sjúklings, og' var þá
pilturinn ekki mjög veikur, hafði kvef og þurran hósta og' talsverðan
hita, en ekki annað objectivt. Seinna fór að bera á blóði í hráka, og
var þá helzt grunur um bráða berklaveiki, en er héraðslæknir sá hann
næst, 11. janúar, voru ýmis meira og minna greinileg taugaveikis-
einkenni komin i ljós, enda var þá og piltur í næsta húsi nýorðinn
veikur með grunsamlegum einkennum. Daginn eftir bættist við nýr
sjúklingur í þriðja húsinu, rúmlega tvítugur piltur. Hafði drukkið
kaffi og borðað kökur með á fyrsta heimilinu á nýjársdag. Þessi
piltur varð afarþungt haldinn, nærri strax og' hann veiktist. 24. janúar
bættist við 1 sjúklingur í fjórða húsinu, og' enn bættust við 4 sjúkl-
ingar í janúar og 1 í febrúarbyrjun, en þá tók fyrir útbreiðslu veik-
innar, og barst hún ekki í fleiri hús en þessi fjögur, sem jjegar voru
orðin smituð, er vitneskja fékkst um veikina, enda var þá þegar
tekin upp samgönguvarúð við hin sýktu heimili. 3 af sjúklingunum
voru fluttir til Akureyrarspítala. Fyrir hina voru með ráði héraðs-
læknis teknar 2 stofur í einu hinna smituðu húsa fyrir sjúkrastofur
og fengin hjúkrunarkona frá Akureyri til að stunda þá þar með aðstoð
tveggja kvenna úr eynni. Bólusetning fólks á eynni til varnar tauga-