Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Page 76
74
2 dögum áður koinið á heimili skyttu, sem þá fyrir sköinmu hafði
skotið nokkuð af svartfugli, og seitist á rúm. Ég' þykist sjá það af
Bergsöe: Fra Mark og Skov, að þetta inuni hafa verið kvendýr teg-
undarinnar sarcopsylla penetrans, en það er háttur hennar að grafa
hausnum, eða frambúknum öllum, á kaf i húð „vertsins", hvort seni
það er fuglar, menn eða skepnur, og fylla svo belg sinn með blóði.
Segir Bergsöe dýrið vera af flokki sandflóa (Sandlopper) og sé helzt
í hitabelti, en talar ekki um sérstaka villtra-fugla-lús með þessa
náttúru. Haemarthr. genus. 2, haematoma femoris magnum 1, ruptura
lendinis Achill. subcutan. 1, rupt. ligamenti collateral. tibial. 1>
rupt. musc. vasti femor. 1.
Fáskrúðsjj. Slys engin alvarleg á árinu, nokkur liðhlaup og smá-
slys, og 1 maður skaut úr séraug'a. Gikkurinn á byssunni fór alveg
af og rakst inn í augnatóftina ofan við vinstra auga og sprengdi það.
fíerufj. Piltur var á rjúpnaveiðum. Snjókoma var nokkur, og safn-
aðist snjór á hlaupið. Strauk hann þá snjóinn af því með vinstri
hendi, en hélt um gikkinn með hinni hægri. En um leið og hann
teygði vinstri hönd fram af hlaupinu, hefir hann óafvitandi tekið
fastar um gikkinn með hinni hægri, svo að skotið hljóp af, tætti í
sundur einn fingur og framan af öðrum. Drengur varð á milli báts
og brygg'ju með þumalfingur, og marðist hann svo, að taka varð
fingurinn af. Maður var að setja í gang mótor, en á hjólinu, sem
snúa átti, var nagli sem handfang og á hann að vera þannig út-
húinn, að hann skreppi inn jafnskjótt og höndin sleppir af honuin.
Maðurinn sneri í gang með fæti, naglinn skrapp ekki inn (bilaður
gormurinn), heldur lenti hann á hné mannsins, og varð af mikið
sár. Vuln. cont. 7, incisa 4, sclopet. 1, puncta 1. Combustiones 3.
Hornafj. Fract. tibiae 2, antibrachii 2, önnur complicata á gamalli
konu ineð ættgenga osteoporosis, oss. metacarp. I. Drengur varð
undir steini með v. vísifingur, og hjóst af fremsti köggull. Auk þess
vildi það hörmulega slys til, að bátur fórst í Hornafjarðarósi á inn-
siglingu á vertíðinni, og drukknuðu 2 menn af 4.
Síðu. Fract. colli femoris 1 (gömul kona), cruris 2 (barn, 7 ára, og
stúlka um tvítugt), costarum 1. Contusiones 4 og corpora aliena
oculi 7.
Mýrdals. I desember kom upp eldur í rafstöðinni, gömlu timbur-
húsi, sem brann til kaldra kola á svipstundu. Kviknaði út frá olíuvél,
en rafmagnslaust var vegna aðgerðar á stöðinni. Öldruð kona, rúm-
læg, brann inni, og önnur brenndist allmikið á höndum og andliti-
Maður, sem reyndi að bjarga gömlu konunni, skar sig á úlnlið lófa
megin og í sundur slagæð.
Vestmannaeijja. 11 ára gamall drengur datt, er hann var að æfa
sig' í að „spranga“. Bilaði nagli, sem „tóinu“ hélt. Félck fract. tib. sin.
Enskur sjómaður, 29 ára gamall, datt ofan í lest í togara. Fékk
slæmt fótbrot (fract. crur. complic. sin.) og átti lengi í því. Dreng-
ur, 3 ára gamall, skáll á hægri handlegg og hlaut framhandleggs-
hrot. Verkamaður, 33 ára, féll úr ca. 10 metra hæð, þar sem hann
var að smíða olíugeymi, og hlaut allmikið meiðsli (infract. epicondyl-
med. femor. dextr. et contus. calc. utriusque). Sjómaður, 44 ára