Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Qupperneq 42
40
Utan sjúkrahúsa er getið um 6 sjúklinga í þessum héruðuin í
árslok:
Hóls: 1 (kona 81 árs).
Ólafsfj.: 1 (karl 53 ára).
Húsavíkur: 2 (karl 56 ára, kona 62). •
Vestmannaeyja: 1 (kona gömul).
Grimsnes: 1 (karl 68 ára).
Læknir Lauganesspitalans lætur þessa getið:
Á árinu kom 1 kona frá Akureyri, 79 ára gömul, með 1. tuberosa.
Þessi kona dó á árinu, svo að í árslok eru sjúklingar 18 eins og áður,
og skiptast þannig eftir tegund veikinnar:
L. tuberosa 8 karlar og 6 konur. L. anaesthet. 1 karl og' 3 konur.
Af aðgerðum á árinu hafa verið gerðar ein tenotomia til þess að
laga contracturae á hendi, ein amp. dig. I ]ied. vegna trophiskra
ulcerationa og ein exstirpatio á kalk-concrementum i örvef. Enn-
fremur nokkrar smáaðgerðir: tanntökur, incisionir o. þ. h. Eins og
áður, hefir fjöldi sjúldinga verið undir handleiðslu og eftirliti augn-
læknis. Eng'ar augnaðgerðir hafa þó verið gerðar á árinu. Á Rann-
sóknarstofu Háskólans hafa undanfarið farið fram rannsóknir á C-
vitamíni í þvagi og blóði, og eftir ósk Rannsóknarstofunnar var
þetta rannsakað á öllum sjúklingum spítalans. Aðeins einn sjúk-
lingur náði því, sem talið er lágmark þess C-vitamíns, sem vera ber í
þvagi heilbrigðs manns, en um helmingur sjúklinganna var fyrir
neðan það mark, sem Rannsóknarstofan telur, að beri vott um skyr-
bjúg. Voru svo valdir 5 sjúklingar til rannsóknar á því, hvað þyrfti
til þess að metta þá af C-vitamíni. En þessar rannsólcnir hafa orðið
að hætta vegna skorts á ascorbínsýru. Vegna þessarar niðurstöðu
rannsóknanna, er vert að taka fram, að sjúklingarnir hér hafa ágætt
fæði á íslenzkan mælikvarða. Nýtt kjöt og fisk 4 sinnum í viku með
rófum og kartöflum, eins og hver vill. Skyr fá allir, sem vilja, á mál-
um og 1—2 lítra af góðri nýmjólk á dag að meðaltali. Enginn minna
en 1 1 og sumir 2 eða meira, enda voru þeir beztir. Lýsi fá allir, sem
vilja og hægt er að koma því i, þó að það hafi vitanlega ekki svo
mikla þýðingu í þessu sambandi. En þrátt fyrir þessa niðurstöðu
rannsóknanna, hefir aldrei borið á neinum kliniskum einkennum
skyrbjúgs hjá einum einasta sjúklingi, og þessi vítamínskortur virð-
ist vera furðu meinlaus, því aðeins 2 sjúklingar fundu nokkra bót á
líðan sinni eftir að þeir fóru að fá ascorbínsýru, svo vafasamt er
að þakka það henni.
Læknar láta að öðru leyti þessa getið:
Ólafsfi. 1 sjúkling ur, sá sami og verið hefir.
Akureyrar. Þeir 2 holdsveikissjúklingar, sem taldir eru í ársskýrslu
1936, dóu báðir á árinu 1937, og' er því enginn holdsveikissjúklingur
í héraðinu nú við árslok.
Grímsnes. Sami maður á skrá og undanfarin ár, karlmaður með
lepra anaesthetica.