Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 103
101
ni3; íneðaltal 3,7 m3. 1 íbúðarherbergjum 1,7—6,0 m3; meðaltal 4,3
m3, sem heimilisfólkið notar jafnframt. í hinum sérstöku skólahús-
um, þar sem loftrýmið er minnst, er það oft drýgt með því að kenna
börnunum til skiptis i stofunum. Vatnssalerni eru til afnota i skólun-
um fyrir 7879 þessara barna eða 60,8%, forar- eða kaggasalerni fyrir
4653 börn eða 35,9%, og ekkert salerni hafa 429 börn eða 3,3%. Leik-
fimishús hafa 6572 barnanna eða 50,7% og bað 6228 börn eða 48,1%.
Leikvellir við þessa skóla eru taldir fyrir 6498 börn eða 50,1%.
Læknar telja skóla og skólastaði góða fyrir 8609 þessara barna eða
66,4%, viðunandi fyrir 3759 eða 29,0% og óviðunandi fyrir 593
cða 4,6%.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Kaþólski skólinn liefir verið í litlu húsi, og fullnægði hann
ekki kröfum tímans um skólahús, en loftræsting var góð og um-
gengni öll í bezta lagi, svo að ég lét við svo búið standa, af því að
systurnar ætluðu að byggja nýtt skólahús, sem nú er fullbyggt (1938)
og tekið til notkunar. Er það fögur bygging, sem fullnægir kröfum
tímans.
Skipaskaga. Olafur Finsen, fyrrverandi héraðslæknir, var ráðinn
skólalæknir barnaskóla Akraness þetta skólaár, en skólaskoðun í
sveitum framkvæmdi héraðslæknir. Að vanda ógu kennarar skólans
börnin að haustinu og um miðjan vetur. 176 börn höfðu þyngzt, 43
höfðu staðið í stað, en 26 börn höfðu létzt. Daglega fengu börnin
lýsisg'jafir, er hreppurinn kostar, en því miður hefir ekki enn verið
kostur á að koma fram mjólkurgjöfum, þótt farið hafi verið fram
á það. Eins og' getið hefir verið um áður, er barnafjöldinn orðinn
svo mikill, að skóiinn reynist of lítill. Kennslan hefir farið fram í 7
bekkjum frá kl. 9 f. h. til kl. 18. Bekkir tvísettir. Þrifnaður og um-
gengni i skólanum í góðu lagi.
fíorgarfj. Ég tel það eitt af hinuin mest aðkallandi nauðsynjamál-
um héraðsins, að reistir verði heimavistarbarnaskólar, einn fyrir
liverja 2—3 hreppa eftir ástæðum, og farkennslan lögð niður, því
að hún mun oftast vera hið argasta kák nema í höndum afbragðs-
kennara.
Ólafsvikur. Skólaskoðanir framkvæindar í öllum hreppum héraðsins.
Stykkishólms. Eitthvert erfiðasta verk, sein ég' geri, er að ráða við
mig, hvort ég' eigi að samþykkja þenna eða hinn skólastaðinn, sem
áformað er að kennsla skuli fara fram á á vetrum. Farskólafyrir-
komulagið er hreinasta neyðarúrræði og getur aldrei verið að neinu
leyti til frambúðar.
Dala. Skólastaðirnir og skólahaldið má heita algerlega óbreytt frá
því, sem var í fyrra.
Regkhóla. Skólaskoðanir fóru fram að vanda í byrjun vetrar. Far-
skólar eru í öllum (3) hreppum héraðsins. Er ólík aðstaða hrepp-
anna til þess að geta fullnægt skilyrðum um gott húsnæði til kennslu.
1 Geiradalshreppi eru börnin fæst, en húsakynni einna bezt. í Gufu-
dalshreppi eru fleiri börn á skólaaldri, en húsakynni einna lökust í
héraðinu. í Reykhólahreppi eru langflest börnin, og reynist stundum
erfitt að koma kennaranum (með þeim börnum, sem honum þurfa