Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Page 52
50
Eijrarbakka. Til ínín var leitað með 2 talsvert slæm tilfelli. Sjúk-
dómurinn hvarí' eins og dögg fyrir sólu við ultranolnotkun.
Grímsnes. Tiltölulega sjaldgæfur sjúkdómur hér.
21. Rheumatismus. Ischias.
Borgarfi. Ischias: Óvenjumikið um þenna þráláta sjúkdóm, hvað
sem því veldur.
Reykjarfj. Reumatismus musculorum er algengur kvilli nú eins
og áður. Ischias: 2 tilfelli. Batnaði sæmilega við nudd og heita bakstra.
Seyðisfj. Gigt í öllum myndum er tíður kvilli, og kemur sér vel að
hafa nuddlækningastofu, sem er mikið notuð.
22. Torticollis.
Dala. Torticollis congenita: 1 piltur, 6 ára.
23. Tumor medullae.
Hofsós. Af fágætum sjúkdómum má nefna mænusjúkdóm með para-
lysis allt upp að brjóstum, en um orsök er ókunnugt, sennilega tumor.
Dró til dauða.
I). Kvillar skólabarna.
Töflur IX og X.
Skýrslur um skólaskoðanir hafa nú borizt úr öllum læknishéruð-
um nema tveimur (Þistilfj. og Reyðarfj.) og ná til 12961 barns.
Af þessu 12961 barni voru 4 talin svo berklaveik við skoðunina,
að þeim var vísað frá kennslu, þ. e. 0,3%o. Önnur 168, þ. e. 13,0%c,
voru að vísu talin berklaveik, en ekki smitandi og' leyfð skólavist.
Lús eða nit fannst í 1524 börnum af 12661, sem séð varð, að at-
huguð hefðu verið að j)essu leyti, eða 12,0%, og kláði á 50 börnum í
11 héruðum, j). e. 3,9%0. Geitur fundust ekki í neinu barni, svo að
getið sé.
Við skoðunina ráku læknar sig á 4389 börn með ýmsa aðra næma
kvilla, þ. e. 33,9%. Þar af flest í Reykjavík, og er þess að gæta, að
farsóttatölur skólabarna þaðan og' annars staðar af landinu eru ekki
sambærilegar, því að í Reykjavík munu öll börn talin, er veiktust á
skólatímanum, en annars staðar aðeins þau, sem veik voru, er skóla-
skoðun fór fram. í Reykjavík eru talin 4277 börn með farsóttir, eða
117,4%, þar af með barnaveilci 71, mislinga 2337, skarlatssótt 238 og
kikhósta 1631, en í öðrum héruðum samtals 110 börn eða íí,8%0, og
skiptust kvillar þeirra sem hér segir:
Angina tonsillaris .................... 18
Catarrhus resp. acut................... 90
Febris rheumatica ...................... 1
Impetigo contagiosa .................... 3
Samtals 112
Tannskennndir höfðu 9384 börn af 12661 barni, sem upplýsingar
lágu fyrir um að því levti, eða 74,1% (í Reykjavík 73,0%, utan Revkja-
víkur 74,6%). Þess er að gæta, að í Reykjavík munu aðeins vera
taldar skemmdir í fullorðinstönnuin barna.