Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Page 69
Slcipaskaga. Síðast í september var verið að vinna að affermingu
úr mótorbát við hafnargarðinn á Akranesi. Vindur var hvass á út-
sunnan og sjór mikill, svo að stærstu ólög gengu yfir garðinn. Sök-
um verkfallsóeirða var mikill mannsöfnuður á garðinum og meðal
annarra margir unglingar. Skyndilega kom óvenju mikið ólag, er
sópaði allmörgum, er á garðinum voru, í sjóinn. Flestir komust upp
1 bátinn, er við bryggjuna lá. Einum unglingspilti var bjargað af
manni, er fleygði sér til sunds á eftir honum, og kom honum á land.
2 piltar, 15 ára og 10 ára, drukknuðu. 25. október fórst unglings-
piltur af voðaskoti. Pilturinn fór einsamall á fuglaveiðar fyrri part
dags, og er hann var ekki kominn heim, þegar leið á kvöldið, var
hafin leit, og fannst hann þá liðið lík niður við sjó, nokkru fyrir
innan Akranes. Á líkinu var stórt skotsár framan á brjósti hægra
megin, og hafði skotið farið í lungað. Slysið hefir sennilega orðið
þannig', að hann hefir dottið með hlaðna byssuna, bógur hennar
lent á steini og skotið riðið af um leið. Byssan var tvíhleypt hagla-
byssa, og er hún fannst, var skot í öðru hlaupinu, en hinum megin
var bógurinn brotinn af og í því hlaupi tómt skothylki. Önnur slys
fremur smávægileg'. Fract. costae 8, claviculae 1, epicondyli humeri
1, antibrachii 1, ulnae 1, radii 3, pedis 1. Vulnera contusa capitis 18,
faciei 12, dig'iti 14, genus 8, puncta plantae 10. Lux. humeri 3. Am-
bustiones 14. Excoriationes 38. Corpora aliena oculi 32, digit. et
manus 28.
Borgarff. Slys með minnsta og' fæsta móti. Fract. radii 1, claviculae
1. Lux. humeri 2. Ambustiones 5. Vulnera 15. Önnur meiðsli (con-
tusio, distorsio) 15. Um atvik að helztu slysum er þetta að segja:
Kona um sextugt féll á gólfi og braut framhandlegg við úlnlið. Stúlka
um tvítugt datt af hestbaki og viðbeinsbrotnaði. Kona á sjötugs-
aldri féll í stiga og fór úr axlarlið. Hitt liðhlaupið varð af mjög óveru-
legri orsök (habituell luxation). Brunasárin voru öll smávægileg.
Það gegnir furðu, hve fá slys verða við hina mörgu hveri í þessu
héraði. Það har við á íþróttamóti, að einn af starfsmönnum móts-
ins varð fyrir kúlu (i kúluvarpi). Lenti kúlan á enninu og hlaust
af 8—10 cm langur skurður, lóðréttur, á miðju enni, inn að beini,
en hvorki beinbrot né heilahristingur. Maður var að skjóta kálf með
venjulegri fjárbyssu, kálfurinn féll við skotið og var skorinn, en
maðurinn kenndi sársauka í sama bili fyrir ofan hné. Þar sat nú
kúlan inni í bursa suprapatellaris (náðist með skurði), en krúna
kálfsins reyndist heil. Maðurinn varð jafngóður. Hestur sló mann í
andlitið, og hlaut hann af því þrælslegt glóðarauga og sár á augna-
brfin. Varð jafngóður. Nokkrir menn meiddust í vegavinnu, hlutu
sár af skóflu eða kvísl, en ekki alvarlega. Maður særðist framan
á fótlegg við skógarhögg.
Borgarnes. Fá slys injög alvarleg'. Fract. colli femor. á gamal-
menni, typica radii, tibiae og nokkrar infractionir, 2 einföld liðhlaup.
Ólafsvíkur. Karlmaður nokkur, 29 ára, i Ólafsvik, var á leið til
þess að taka upp mó, en klifraði í kletta á leiðinni, til þess að leita
að eggjum, og hrapaði. Fract. pelvis vinstra megin, ruptura urethrae.
Sjúklingurinn dó skömmu síðar af ,,shock“ og haemorrliagia interna.