Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 81
79
Á fjárlögum næsta árs voru sömu liðir áætlaðir kr. 669481,00 +
1592500,00 = 2261981,00.
2. Heilbrigðisstarfsmenn.
Tafla I.
Á læknaskipun urðu eftirfarandi breytingar:
Ósk ar Einarsson, fyrrverandi héraðslæknir, ráðinn, 4. febr. til að
vera yfirlæknir við Reykjahælið frá 1. maí Jón Steffensen, læknir
frá Akureyri, skipaður 8. febr. prófessor í læknisfræði (líffæra- og
lífeðlisfræði) við Háskóla Islands frá 1. febr. að telja. Bjarni Guð-
mundsson, héraðslæknir í Ólafsfjarðarhéraði, skipaður 17. marz
héraðslæknir í Flateyrarhéraði frá 1. maí. Gísla Péturssyni, héraðs-
iækni í Eyrarbakkahéraði, veitt 22. marz lausn frá embætti frá 1.
maí. Jóhann J. Kristjánsson, héraðslæknir í Höfðahverfishéraði, skip-
aður 22. apríl héraðslæknir í Ólafsfjarðarhéraði frá 1. maí. Lúðvík
Nordal Davíðsson, læknir á Eyrarbakka, skipaður 28. apríl héraðs-
læknir í Eyrarbakkahéraði frá 1. maí. Sigurjón Jónsson, héraðslæknir
í Svarfdælahéraði, settur 5. maí til að gegna Höfðahverfishéraði á-
samt sínu héraði. Árni B. Árnason settur 1. júní og' skipaður 5. júlí
héraðslæknir í Höfðahverfishéraði frá 1. júlí. Högna Björnssyni,
héraðslækni í Ögurhéraði, veitt 15. júlí lausn frá embætti frá 1.
jan. 1938. Ólafi Finsen, héraðslækni í Skipaskagahéraði, veitt 28.
sept. lausn frá embætti frá 1. okt. Sigurjóni Jónssyni, héraðslækni
í Svarfdælahéraði, veitt 28. sept. lausn frá embætti frá 1. jan.
1938. Steingrímur Matthíasson, fyrrverandi héraðslæknir, skipaður
28. sept. héraðslæknir í Skipaskagahéraði, frá 1. okt. og honum veitt 23.
okt. lausn frá sama héraði frá 1. nóv. Hallgrímur Björnsson, læknir
á Akranesi, settur 26. okt. héraðslæknir í Skipaskagahéraði frá 1.
nóv. — Árni Árnason, héraðslæknir í Ólafsvílcurhéraði skipaður 18.
des. héraðslæknir í Skipaskagahéraði frá 1. jan. 1938.
Almenn lækningaleyfi og sérfræðingaleyfi voru veitt sainltv. lögum
nr. 47, 23. júní 1932 um lækningaleyfi o. s. frv. sbr. reglugerð 30. des.
1932 um skilyrði fyrir veitingu lækningaleyfis og sérfræðingaleyfis:
1. Almennt lækningaleyfi:
Árni B. Árnason (24. maí).
Björgvin Finnsson (24. sept.).
Ófeigur J. Ófeigsson (13. okt.).
Kristinn Stefánsson (13. okt.).
Jóhann Þorkellsson (13. des.).
2. Sérf ræðingaleyfi:
Axel Blöndal í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp (1. júli).
Eyþór Gunnarsson í nef- og háls og eyrnalækningum (6. júlí).
Óskar Þórðarson í barnasjúkdómum (6. júlí).
Björgvin Finnsson í nuddlækningum (24. sept.).
Karl S. Jónasson í handlækningum (8. okt.).
3. T a k m a r k a ð lækningaleyfi:
Ernma á Heygum til að stunda sjúkranudd (28. jan.).
Þessir læknar settust að störfum á árinu: