Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Qupperneq 93
91
Vopnafi. I sveitinni var byggt 1 hús úr steinsteypu fyrir lán úr
Nýbýlasjóði. Hiisið reyndist nijög rakasamt síðastliðinn vetur, þrátt
fyrir óvenju lítil frost, svo að naumast gat talizt fært til íbúðar, enda
síðbúið um haustið og án miðstöðvar. í kauptúninu var byggt lítið
timburhús, einlyft með kjallara undir úr hlöðnu grjóti.
Norðfj. Sem ekkert byggt á árinu og lítið bætt af húsakynnum manna.
Berufj. 2 ný timhurhús voru byggð á árinu, en á nokkrum bæjum
hafa verið gerðar svonefndar húsabætur með tilliti til laga frá síðasta
Alþingi. Óðum fjölgar þeim, sem leg'gja miðstöðvar í hús sín. Einni
tegund húsa fjölgar ekki, sem sé WC. Þau sjást varla. Fólkið notar
fjósin, jafn þrifalegt og það er.
Hornafj. Byggingar hafa verið miklar í héraðinu og' því nær
eingöngu úr steinsteypu. 3 eða 4 nýbýli eru að rísa upp í Nesj-
um, enda ræktunarskilyrði þar mjög góð og mikið landflæmi
fremur auðræktað. Gætu vist allir íbúar sýslunnar rúmazt þar og
lifað góðu lífi á kartöflu-, korn- og loðdýrarækt, auk atvinnu við
fiskveiðar.
Síðu. Húsakynni víða orðin þolanleg og úijög ólík þvi, sem var hér
fyrir 20 árum. 1 nýtt íbúðarhús reist á árinu. Þrifnaði fer fram,
þótt hægt fari, en illa gengur að útrýma lúsinni. Hundar munu vera
hreinsaðir með reg'lu, enda mun það koma sér, því að þeir gang'a
víða óþarflega mikið um híbýli manna.
Mýrdals. Húsakynni sæmileg. Dálítið byggt. Þrifnaður dágóður, en
eitthvað þó um lús.
Vestmannaei/ja. A þessu ári hefir holræsagerð fleygt mikið fram,
nýjar g'ötur lagðar og aðrar endurbættar og breikkaðar. Húsakynni
liafa Jítið batnað á árinu. Aðeins örfá íbúðarhús verið reist.
Grímsnes. Húsabætur hafa verið töluverðar þetta ár. Ný steinhús
koma í stað gamalla timburhúsa eða bæja.
Keflavikur. Fleiri og fleiri vönduð hús bætast við í sjóplássunum,
sum af nýjustu gerð og mjög svo haganlega útbúin. Þrifnaður fer
lika i vöxt, sérstaklega í kringum þessar nýju byggingar. A vertíð
er þrifnaði mjög' ábótavant.
5. Fatnaður og matargerð.
Læknar láta þessa getið:
Borgarfj. Engin veruleg breyting í þeim efnum. Þó mun ræktun
og neyzla grænmetis aukast nokkuð.
Stijklcishólms. Fólk er tregt ti! að hagnýta sér sín eigin efni til
fatagerðar, ullina. Ullarnærföt eru miklu minna notuð en skyldi,
cinkum í kauptúnum. Og átakanlegan vott um lélegan fótabúnað
bera fæturnir á blessuðum stúlkunum. Kartöflu- og grænmetisrækt-
unaráhugi er töluvert vaknaður hjá fólki. Ymsir hér í kauptúninu eiga
sína eigin garða og hugsa um þá í hjáverkum. Þö er kartöfluskortur
hér að vetrinum. Frystihús er hér á staðnum, og bætir það mjög úr
fyrir fólki að ná sér í nýjan fisk og nýtt kjöt. Brauðgerðarhús er
hér í kauptúninu, og er þar vel og snyrtilega um allt gengið. Kúm
hefir fjölgað síðustu árin í kauptúninu, svo að nú eru þær um 70.