Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 98
9(5
nú er breytt um þannig, að hér sést nálega aldrei drukkinn útlend-
ingur, heldur eru það íslenzku sjómennirnir, sem að þessum ófögn-
uði standa.
Ólafsfj. Áfengisnautn er töluverð að vetri til og á skemmtunum.
Áfengisverzlanir á báða bóga, sem sé á Siglufirði og Akureyri, og
samgöngur með mjólkurbát tvisvar og þrisvar í viku. Talsverð notk-
un á kaffi og tóbaki. Um heimabrugg er mér ókunnugt.
Svarfdæla. Tóbaksautn hefir áreiðanlega minnkað dálítið á árinu.
Markar héraðslæknir það sumpart af því, sem hann sjálfur þekkir til,
sumpart af því, að hann hefir fengið þær upplýsingar frá aðalverzl-
uninni hér, útibúi KE5A, að að hún hafi selt fyrir kr. 3000,00 minna
af tóbaksvörum á árinu en árið á undan, og hvorki héraðslæknir né
útibússtjóri telja neinar líkur til, að héraðsbúar hafi keypt venju
meira af þessuin vörum annars staðar.
Höfðahverfis. Ég hefi mjög lítið orðið var við áfengisnautn í hér-
aðinu og ekki heyrt getið um neinn drykkjumann.
Vopnafj. Áfengisnotkun mjög lítil í þessu héraði. Tóbaksnotkun er
einnig fremnr lítil, en kaffi nota menn hér að því er virðist álíka
mikið og annars staðar.
Seijðisfj. Kaffi of mikið drukkið. Vín- og tóbaksnautn svipuð hér
og í öðrum kaupstöðum.
Norðfj. Ekki vil ég segja, að áfengisnautn sé meiri en verið hefir.
Hún er alltaf mikil. Og ekki er farið dult með. Eru dansleikir hér
annálaðir fyrir „fyllirí og slagsmál“. Lítið virðist verðhækkunin á
tóbakinu draga úr neyzlunni.
Bernfj. Tóbaksnautn almenn. Hér reykja svo að segja allir pípu,
og fáir unglingar sjást pípulausir lengi eftir að þeir eru fermdir. En
hér er annað verra á ferðinni, sem ég' hefi ekki vitað um með vissu
i'yrr en í vetur, en það er, að allmörg börn, jafnvel 7—9 ára, og dæmi
eru til um yngri, eru orðin meira eða minna svæsnir tóbaksneytendur.
Dæmi eru til þess, að skólabörn skreppa heiin eða inn á WC til þess
að geta reykt í frimínútunum, og börn, sem eiga neftóbaksmenn fyrir
feður og eiga því erfiðara með að ná í tóbak, reykja moð til þess að
vera með. Reyktóbaksbréfin liggja vitanlega á glámbekk oft og tíð-
um á heimilum, þar sem reykt er, og er þá hægt um vik fyrir börnin
að ná í þau og venjast þau þannig á hnupl. Vindlingabútar eru hirtir
hvar sem er. Og yfirleitt leita börnin leyfilegra og óleyfilegra ráða
til þess að ná sér í tóbaldð. Nokkuð hefir verið gert í vetur til þess
að hamla á móti þessum ófögnuði, en óvíst er um árangur. Áfengis
verður einkum vart i sambandi við skemmtanir eins og áður, en
þær eru þó orðnar friðsamari en Jiær voru á tímabili. Nokkuð er
pantað af vínum frá Áfengisverzluninni, en aftur á inóti er heldur
minna um brugg, einkum eftir að hellt var niður fyrir einum helzta
bruggaranum síðastliðið sumar.
Hornafj. Kaffis og tóbaks mun vera neytt hér líkt og gengur og
gerist. Lítið mun þó reykt af vindlingum, aðallega vegna dýrleika,
en færist þó heldur í vöxt. Áfengisnautn lítil. Bruggun þekkist naum-
ast nema máske lítilsháttar til heimilisnota á 1 eða 2 bæjum í sýsl-
unni. Einstaka maður pantar við og við nokkrar flöskur af „svarta-