Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 47
þar af dóu 5 á árinu. 1 sjúklingur með c.a. labii inf. var sendur í
röntgen og virðist hafa fengið bata.
Miðfi. 3 nýir sjúklingar skráðir á árinu, allir með ca. ventriculi. 1
þessara sjúklinga dó heiina, án þess að til aðgerðar kæmi. 1 kona
var skorin upp á Landsspítalanum — gerð resectio ventriculi — og
1 af sjúklingunum liggur heima dauðvona.
Blönduós. Krabbamein í maga fengu 4 karlar á árinu (enginn skráð-
ur á mánaðarskrá), 61—80 ára, og dóu þeir allir.
Höfðahverfis. 1 maður (ekki skráður á mánaðarskrá) dó hér í
héraðinu úr krabbameini í maga. Skráður á fyrra ári.
Norðfj. Gamall maður kom til inín með magakrabba (ekki skráð-
ur á mánaðarskrá). Var sendur til Reykjavíkur til frekari skoðunar
og mögulegra aðgerða. Kom heim svo búinn. Dó eftir skamman
tíma. Leitaði vitanlega læknis of seint, en einkenni gáfu tæplega til-
efni til þess, að það væri fyrr gert.
Fáskrúðsfj. 3 sjúklingar (2 skráðir á mánaðarskrá) með krabba-
mein, allir dánir: 1 með ca. recidiv. mandibulae og 1 með ca. ventri-
culi, konur héðan úr héraðinu, og 1 karlmaður úr Hróarstunguhér-
aði með ca. recti og metastases — kom frá Reykjavík og dó á sjúkra-
skýlinu.
Hornafj. Sjúklingur, skráður á síðasta árs skrá, lézt á árinu með
recidiv eftir opererað mammacarcinom. Sextug kona með ca. intraab-
dominalis lézt eftir skamma legu, og sextugur bóndi með ca. pro-
statae og metastas. oss. lumb. & sacral. kom heirn eftir 5 mánaða
dvöl á Landsspítalanum.
Rangár. 2 nýir sjúklingar skráðir á árinu (ekki á mánaðarskrá),
hvort tveggja karlmenn með krabba í maga. Alls dóu 4 sjúklingar á
árinu úr krabbameini, og er krabbi árlega hæstur banameina hér,
næst ellilasleika.
Eijrarbakka. 3 sjúklingar skráðir á árinu (enginn á mánaðarskrá).
2 þeirra dánir. 1 nýtur radíumlækninga, en engin von um bata.
Keflavíkur. 3 sjúklingar (1 skráður) með ca. ventricul. og' 1 með
ca. hepatis. Dóu allir, 2 á spítala, hinir 2 heima.
9. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
S júklingafjöldi 1928—1937:
1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 , 1936 1937
Sjúkl............. 4 4 „ 2 „ 6 5 1 2
r
C. Ymsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Nokkrir læknar geta um algengustu kvilla, sem þeir fá til með-
ferðar, svo sem:
Hafnarfj. Algengastir sjúkdómar eru g'igt, magaveiki, taugaveiklun
og tannskemmdir.