Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 35
33
orðnum um áramótin 1936—37. Voru 2 af börnunum læknuð á
sjúkrahúsinu á Hólmavík, en 3 heiina. 1 karlmann varð að senda
á Landsspítalann, en hann hafði lengi legið á sjúkrahúsinu á Hólma-
vík og batnaði strax, er suður kom. Síðar á árinu hefir þessa kvilla
ekki orðið vart.
Blönduós. Kynsjúkdóma hefi ég' enn ekki orðið var við, siðan ég
kom í héraðið.
Sauðárkróks. Sennilega einhver slæðingur hér af lekanda, meira
en mér er um kunnugt.
Siglufj. Lekandi hefir minnkað í héraðinu.
ÓlafsfJ. 1 sjúklingur skráður með lekanda. Aðkomusjómaður.
Seyðisfj. 1 sjúklingur.
Síöu. Héraðið ennþá laust við kynsjúkdóma.
Rángár. 1 karlmaður vitjaði mín með lekanda (ekki skráður).
Smitaðist á Siglufirði.
Keflavíkur. Aðeins 1 sjúklingur skráður með urethr. gon., og má
furðu gegna. Hygg, að eitthvað fari inn eftir til lækninga, en þó
inunu ekki mikil brögð að slíku.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur V, VI, VIII og X.
Sjúklingafjöldi 1928—1937:
1. Eftir mánaðarskrám:
Tb. pulm. Tb. al. loc. 1928 . . 737 .. 489 1929 538 457 1930 407 355 1931 440 300 1932 446 279 1933 471 344 1934 392 434 1935 291 293 1936 304 197 1937 251 169
Alls ... 1226 995 762 740 725 815 826 584 501 420
Dánir . . . ... 211 214 232 206 220 173 165 149 157 155
2. Eftir berklaveikisbókum 1928 1929 1930 (sjúkl. 1931 . í árslok): 1932 1933 1934 1935 1936 1937
Tb. pulm. . . 699 640 685 585 611 869 917 1064 1028 998
Tb. al. loc. .. 331 349 387 299 401 684 714 764 674 526
Alls ... 1030 989 1072 884 1012 1553 1631 1828 1702 1524
Berkladauðinn er aðeins lægri en siðast iiðið ár og' kann enn að
bera menjar hins mikla mislingafaraldurs, er gekk yfir landið árið
fyrir. Heilaberkladauðinn nemur 18,1% af öllum berkladauðanum
og er verulega hærri en árið fyrir (14,6%).
Berkladauðinn sundurliðast þannig (tölur síðastliðins árs í svig-
um): Úr hálsberklum dóu 1 (0), lungnaberklum 112 (119), berkla-
fári 4 (6), eitlatæringu 0 (1), beina- og liðaberklum 0 (3), heila-
himnuberklum 28 (23), berklum í kviðarholi 3 (4), berklum í þvag-
og getnaðarfærum 6 (1) og' í öðrum líffærum 1 (0).
Á töflu X er yfirlit yfir berklarannsóknir á skólabörnum í 28
læknishéruðum og nær til 8081 barns. Þar af reyndust 1772 eða
21,9% berklasmituð, sem er lílið eitt lægri tala en síðast liðið ár