Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 90
88
Sykur: Sykurinn var skemmdur af völdum sjávarvatns og salt-
péturs.
Vatn: í vatni úr 5 brunnum og lækjarvatni fundust coli-gerlar
í 5 cc og 7 tilfelli yfir 100 gerlar pr. 1 cc (Agar 37°). Ennfremur var
nijög mikið af Cl. í vatni allra brunnanna.'
Þurrkaðir ávextir: í 13 tilfellum fannst brennisteinssýrling-
ur. 1 sending af gráfíkjum illa útleikin.
Þvottaefni: Of lítið af aktiv siirefni fyrir „sjálfvirkt“ þvotta-
duft.
4. Hiisakvnni. Þrifnaður.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Byggð á Akranesi 4 ibúðarhús, öll úr steinstevpu með
nýtízkuþægindum. í sveitum 2 íbúðarhús, baíði úr steinsteypu. A
vatnsskorti bar ekkert á þessu ári, enda vætutíð allt sumarið. Heil-
brigðisnefnd á Akranesi lét í ár rannsaka vatn úr 15 brunnum, sem
hún áleit einna lakasta. Við þá rannsókn kom i Ijós, að vatnið í 7
brunnum var ónothæft lil drykkjar sökum mengunar af colibakteríum,
og vatnið í flestum hinum brunnunum reyndist miður nothæft vegna
þess, hve mikið var af föstum efnum í því. Þrifnaður innan húss og
utan má teljast sæmilegur. Einu sinni á árinu þrífa húsráðendur í
kringum hús sín, og lætur hreppsnefndin aka skarninu burt.
Borgarfí. Að minnsta kosti 6 íbúðarhús voru gerð úr steinsteypu og
1 úr timbri, öll sæmilega vönduð og hentug. Víða er rnjög aðkallandi
að bæta húsakynnin, og' munu margir hafa hug á að nota sér styrk
þann, sem nú er veittur til þeirra hluta með lögum.
Borgarnes. Húsakynni batna smátt og smátt. Þau fáu hús, sem byggð
eru allra síðustu árin, virðast mér byggð af meira viti en áður. Hinn
dýri kjallari, sem notaður er undir mó og rusl, er nú að minnka, og
hæðum, og þar af leiðandi stigum, fækkar. Á mörgum bæjum eru
engin vanhús, og' hefði ég' aldrei trúað því, ef ég' hefði ekki reynt,
hve erfitt er að fá menn til að byggja þau og nota. Að öðru leyti virð-
ist þrifnaður fara vaxandi, og' ég held, að geitur, lýs og flær séu að
týna tölunni hröðuin skrefum, og vatn og sápa er stórum meira
notað en áður var.
Stykkishólms. Alltaf fækkar með hverju árinu, sem líður, vondu
iverubæjunum í sveitunum. Töluvert hefir Nýbýlasjóður hjálpað og
létt undir með bændum, en betur má, ef duga skal. Margt hreysið er
eftir enn.
Dala. Nýbyggingar með mesta móti, A árinu voru fullbyggð og í
byggingu 4 steinhús og 0 timburhús. Nú er og meira vandað til
nýrra húsa en áður og kapp lagt á að hafa í þeim nauðsynleg
þægindi.
Reykhóla. Húsakynni fara batnandi ár frá ári. Þrifnaður særai-
legur víðast.
Þingeyrar. Húsabyggingar engar í kauptúninu, enda nóg húsnæði.
Umbætur töluverðar á eldri húsum. Miðstöðvar settar í mörg hús og'
fráræsla. Á mörgum sveitabæjum hafa verið gerð íbúðarhús, en öll
smá og með litlum tilkostnaði. Þó viðunandi íbúðir og' jafnvel