Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Qupperneq 49
47
4. Appendicitis.
Skipaskaga. Koin fyrir 4 sinnum.
Reykjarfi. 4 lilfelli. Öllum batnaði við konservativa meðferð. 2
þessara sjúklinga síðan skornir.
Blönduós. Óvenjulega mikið um botnlangabólg'u, því að ég skar
burtu 26 botnlanga á árinu. Þar af 2 sprungnir, 3 með drepi, 7 teknir
í kasti með einfaldri bólgu og 14 teknir milli kasta. Einkum virtust
Vatnsdælir verða fyrir þessu nú, því að þeir fengu 4 botnlangabólgu-
kast á einum mánuði, og voru 2 botnlangarnir með drepi.
Öxarfi. Það verður eigi gengið þegjandi fram hjá hinum mikla
botnlangafaraldri í Kelduhverfi, hvort sem hann er raunverulegur,
ímyndaður eða hvort tveggja. Ég held hann raunverulegan með nokk-
urri ímyndun með, eins og gengur. Þó að ég láti nú sem svo, að þetta
geti verið ímyndunarkennt, þá hefi ég samt séð svo marga með við-
unandi typiska botnlangabólgu, að ég' efa ekki, að meiri hluti þessa
sé botnlangabólga. En sé það hún, þá er þetta faraldur — 20—30
sjúklingar á tæpu ári í lítilli sveit (ca. 230 íbúar) er ekki tilviljun.
Hér er sameiginleg orsök. Sami virus?
Seyðisfi. Síðustu árin hefir borið meira á þessum kvilla, þó að ekki
séu mikil brögð að því.
Vestmannaeyja. Með meira móti á árinu.
5. Acroparaesthesia manuum.
Reykjarfi. Acroparaesthesia manuum et antibrachiorum: Hefi haft
5—6 tilfelli af þessum þráláta kvilla. Helzt batnað við víxlböð (köld
og' heit) ásamt chinini sulfas.
6. Beri-beri.
Blönduós. Beri-berieinkenni sjást öðru hverju, jafnvel hjá sveita-
fólki. Þannig kom til mín piltur, 17 ára gamall, með máttleysi og eymsli
í kálfum, einkum á caput. med. gastrocnemii, mæði við gang og
lijartslátt. Hjartsláttur mjög áberandi og heyranlegur út undir linea
inámm. dextra. Við adrenalínprófun með % ccm varð heyranlegur
æðasláttur yfir art. femoralis og lifur. Röntgenskoðun sýndi breikltun
á hjartanu neðan til, einkum til hægri, og aortapulsatio. Kvaðst sjúk-
lingurinn hafa haft gott og fjölbreytt fæði, en vera óhneigður fyrir
mjólk. Hann fékk gertöflur (levurine AB) og var eftir 18 daga notk-
un þeirra miklu betri, bæði að því er snerti taug'a- og hjartaeinkenn-
in. Við síðustu skoðun voru öll einkenni horfin, nema hvað hann
var dálítið mæðinn við hlaup, og' hnéreflexar voru negatívir allan
tímann. Fimmtug kona frá sama bæ var flutt til mín og var þá svo
máttlaus í fótum, að hún gat alls ekki staðið, enda vöðvarýrnun
mikil í kálfum. Henni batnaði sömuleiðis við ger, en það tók lang-
an tíma.
Vestmannaeyja. Ég hefi orðið var við B-fjörefnaskort, einkum seinni
part vetrar á nokkrum sjúklingum. Vanfærar konur (2) hafa komið
til mín með neuritis í fót'um, sem lagaðist við hentugt mataræði.
Hæpið að láta þetta og því um líkt ganga undir nafninu beri-beri,
þó að um fjörefnaskort af svipuðu tagi sé að ræða — að vísu má
öllu nafn gefa —en mér er ekki kunnugt um, að það sé gert í öðr-
um löndum.