Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Síða 33
31
Mest kvað að faröldrum sums staðar á Vesturlandi (Stykkishólms,
Flateyjar, Hóls og Isafj.)-
Læknar láta þessa getið:
Stykkishólms. Þessi kvilli gerði venju fremur vart við sig þetta ár.
Flestir sjúklingarnir voru börn og ung'lingar. Veikinni fylgdi oftast
nokkur hiti, sem stóð í nokkra daga og upp í viku tíma.
Hóls. Gekk hér á þessu ári. Börn lágu með sótthita í 2—3 daga
og sluppu öll vel.
Öxarfi. Var til á Raufarhöfn í árslokin.
Norðfj. Stakk sér niður við og við vorið og sumarið.
Eijrarbakka. 2 sjúklinga sá ég óvenjulega iila leikna af þessum
sjúkdómi. Útbrotin höfðu ,,confluerað“, svo að mikill hluti af baki
og brjósti og lendum var að kalla einn löðrandi sárflötur.
Iíeflavíkur. Varð vart í apríl, okt. og nóv. 1 sjúklingur fékk upp
undir 40° hita.
Auk framangreindra sótta geta læknar um þessar farsóttir:
Hólmavíkur. Otitis med. epidemic. Miðeyrabólgu fá mörg
börn, sennilega talsvert fleiri en skráð eru. Var hún mjög langvar-
andi á sumum, en ekki hættuleg.
Blönduós. Sepsis fékk 1 maður á þritugsaldri og var allþungt
haldinn, en batnaði til fulls við prontosii, sem virðist vera hreinasta
undralyf og ég hefi notað allmikið í seinni tíð með ágætisárangri.
Norðfj. Exanthema infectiosum (eryth. variabile etc.). í
desember sá ég 5 börn, sem ég eftir langa mæðu dæindi þenna sjúk-
dóm á. Þó fannst mér diagnosis svo óviss, að ég vildi ekki setja þetta
á mánaðaskrá. Aldur barnanna var 4, 5, 12 og 13 ára; 4 stúlkur, 1
drengur. Eftir á frétti ég af ýnisuni fleiri exanthemtilfellum, öllum
í sömu hverfum bæjarins. Var þó lýst misjafnlega (sbr. nafnið: e.
variabile). Lítill lasleiki með. Það einkennilega við exanthemið var,
að það hjaðnaði og kom aftur á víxl. Lokalisationin var í mínum
tilfellum, auk andlits, aðallega handleggir, en þó mest axlir og herð-
ar, og þar varieraði það mest.
Eijrarbalcka. Febris ephemera. Ofkælingarsótt hefi ég skráð
0 sinnum. Vera má, að þetta sé hentug „ruslakista", þegar „diagnosan“
er ekki á takteinum og sjúklingnum batnar án allra aðg'erða eftir
1—2 daga.
B. Aðrir næmir sjúkdómar. Krabbamein. Drykkjuæði.
Töflur V, VI, VII, 1—4, VIII og X.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1—3.
Sjúklingafjöldi 1928—1937:
1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937
G.onorrhoea . 407 431 519 400 372 482 576 665 632 597
Syphilis . . . . 21 13 29 21 50 37 30 35 16 8
Ulcus vener. . 3 12 15 3 1 7 2 2 1 >>