Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Side 97
leiðsluheimilin né gripir þeirra verið háð neinu eftirliti. Dýralæknir
héraðsins framkvæmir ekki að jafnaði eftirlit með kúm og fjósum
annarra búenda en þeirra, sem selja mjólk til mjólkurbúanna.
Iíeflavikur. Mjólkurframleiðsla er töluverð, og fer mikið af mjólk-
inni til Reykjavíkur, líklega of mikið.
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
Vitnisburður lækna um áfengisnautn er næsta ósamhljóða, og mun
sumum ekki finnast það tiltökumál, sem öðrum vex í augum. Virðist
helzt einkennandi fyrir drykkjuskap íslendinga nú, að daglegs
drykkjuskapar gætir óvíða mikið, en hóflaus og siðlaus áfengisnautn
á skemmtunum og tyllidögum, sem einnig nær til kvenna og ung-
linga. Lýsing héraðslæknisins i Berufjarðarhéraði á tóbaksnautn
barna á Djúpavogi er najsta eftirtektarverð.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Áfengissala nokkur. Utanbæjarmenn kaupa mest.
Skipaskaga. Áfengisnautn ekki mikil, þótt fyrir komi, að menn sjá-
ist drukknir á danssamkomum. Landabrugg orðið mjög lítið, þótt
tæpleg'a sé því með öllu útrýmt. Goodtemplarareglan starfar nú með
allmiklu fjöri. Kaffidrykkja er mikil. Tóbaksnautn hefir sízt minnkað,
og virðast einkum vindlingareykingar kvenna og unglinga fara í vöxt.
Borgarnes. Eg held, að áfengisnautn sé elcki mjög mikil hér, en
kaffi er mikið notað og tóbak, mest sem neftóbak, og' nokkuð er
reykt, einkum vindlingar.
Ólafsvikur. Áfengisnautn er nokkur á skemmtunum og tyllidögum,
cn ekki teljandi hversdagslega.
Stykkishólms. Ölvunar gætir mjög lítið, og ofneyzlu áfengis tel ég,
að sé mjög' lítil nú orðið. Tóbak er nokkuð notað og kaffi drukkið
mikið.
Reykhóla. Áfengisnotkun lítil. Heimabrugg ekkert.
Hesteyrar. Áfengis neytir enginn. Kaffi og tóbak notað mjög' hóf-
lega, miðað við önnur byggðarlög.
Reykjarfj. Áfengisnautn er lítil i héraðinu. Hins vegar talsverður
dryklcjuskapur aðkomufólks á síldarstöðvunum á sumrin. Kaffi
drekka allir og margir í óhófi. Karlar taka flestir í nefið, og' reykingar
færast nokkuð í vöxt.
Miðfj. Áfengisnautn mun minni en undanfarin ár, enda mun
heimabrugg varla þekkjast nú orðið. Kaffi og tóbak mikið notað.
Siglufj. Tóbaksnautn er hér mikil. Algengt, að menn taki í nefið,
en sumir nota neftóbak undir neðri vörina eins og' Svíar. Munntóbak
er einnig talsvert notað, en mest er þó reykt, sérstaklega vindlingar,
og reykja jafnt konur sem karlar. Á sér stað, að kvenfólk reyki, með-
an það kverkar síldina. Unglingar byrja snemma að revkja. Drykkju-
skapur er hér mikill á sumrin, og ber mest á því um helgar og í
landlegum. Kemur þá oft fyrir, að maður er vakinn upp nótt eftir
nótt til að gera að sárum ölvaðra manna og stundum oft söniu
nóttina. Áður fyrr voru það aðallega norskir og aðrir útlendir sjó-
menn, sem héldu uppi fylliríi og slagsmálum hér á Siglufirði, en