Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 56
þroti á hálsi 3, kokeitlaauki 6, munnöndun 5, scoliosis 2, sjónskekkja
3, rachitis 2 (börn alls 67).
Seyðisfí. Eins og undanfarin ár reyndust tannskemmdir algeng-
asti kvillínn, en að öðru leyti álitust börnin vel hraust.
Norðfí. Börnin reyndust yfirleitt að miklu leyti laus við sjúkdóma,
og engin opinber berklaveilci fannst í neinu þeirra. Þó eru kaup-
staðarbörnin hvergi nærri öll hraustleg. Tæplega verður þar uni
kennt ónógri fæðu, en öllu heldur óheppilegri og svo illri aðbúð og
menningarskorti yfirleitt. Tennur verri í kaupstaðnum en til sveitar-
innar og sést það hezt á skólabörnum, þó ekki eins vel á fjölda barna
með tannskemmdir eins og á fjölda skemmdra tanna. I Neskaupstað
eru í 187 börnum (í barnaskóla) taldar 594 tennur skemmdar, en í 26
börnum í Norðfjarðar- og Mjóafjarðarhreppum teljast þær 48. Þetta
er nærri tvöfaldur tannskemmdafjöldi í kaupstaðnum (3,2 tennur á
barn á móti 1,8). Sjálfsagt myndi munurinn verða en greinilegri, ef
þau kaupstaðarheimili, sem styðjast við landbúnað, væru talin
sveitarmegin.
Fáskrúðsfí. Af 160 skólabörnum höfðu 136 tannskemmdir, og er
það svipað og' áður. Börnin annars hraust.
Berufí. Börnin hraust og öllum leyfð skólavist. Langalgengasti kvill-
inn er tannskemmdirnar, þá eitlaþroti, sennilega aðallega af völd-
um skemmdra tanna. Nokkur börn höfðu tonsillitis chron. Lús er
sjálfsagt mun algengari en ráða má af skýrslunni.
Hornafí. Engu barni þurfti að vísa frá vegna tbc. eða annarra veik-
inda. Hypertrophia tonsill. 27, lymphadenitis 54, adenoidvegetat. 12,
skakkbak 2 (börn alls 114).
Síðu. Heilsufar skólabarna var yfirleitt gott og' engu vísað frá vegna
vanheilsu. Af 83 börnum, sem skoðuð voru, höfðu 31 eitla á hálsi,
26 stækkaða kokeitla, 11 hvarmabólgu, 6 flösu í hári, 3 blóðlítil, 3
hryggskekkju, 5 kvefsótt, 1 kregðu, 1 offitu. Þess verður að geta, að
flest af börnunum, sem talin eru með stækkaða kokeitla, höfðu þá
lítið stækkaða. Sama má segja um hálseitlana.
Vestmannaeyja. Eitlaþroti 48, eitlaauki 31, skakkbak 52, nærsýni
6, heyrnardeyfa 11, strabismus 7 (barnaskólinn, börn alls 539). Að-
ventistaskólinn: (33 börn): blóðleysi 5, eitlaþroti 4, skakkbak 1, nit 2.
Rangár. Langalgengasti kvillinn tannskernmdir eins og að undan-
förnu. Engu barni meinuð skólavist vegna veikinda, en nokkrum
börnum, sem höfðu kláða, synjað um skólagöngu um stundarsakir.
Eijrarbakka. Einu barni vísað úr skóla vegna gruns um tbc. pulni.
incipiens. Sá grunur staðfestist við röntgenskoðun. Hvpertroph.
tonsill. pal. 84, lymphadenit. submaxill. 11, lymphadenit. colli 2,
morb. cordis 2, verruc. man. 1, verruc. nuchae 2, carbuncul. nuchae
1, scoliosis 17, myopia 27, scrophulosis 4, hordeol. 3, appendicit. chron.
1, eczema solar. 4, epilepsia 1, distors. malleol. 1, polyarthr. rheumat.
chron. 1, strabismus converg. 3, strabismus divergens 1, heyrnardeyfa
1. Svo að segja allir drengir hafa marbletti á fótum (börn alls 382).
Grímsnes. Heilsufar skólabarna mátti heita gott. Engu visað frá
kennslu. Tannskemmdir algengasti kvillinn eins og áður.
Iíeflavíkur. Óþrif töluverð, þó að talsverðan mun til hins betra