Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Síða 109
107
18. Veggjalýs og húsaskítir. Rottur og mýs.
Læknar láta þessa getið:
Reykjarfí. Veggjalýs eru ekki til hér, en húsaskítir eru á Eyri og
í Djúpuvík. Þá er og talsverður rottugangur á sömu stöðum.
Sauðárkróks. Húsaskítir eða veggjalýs eru hvergi, svo að ég viti til.
Eyrarbakka. Rottur eru hér hin versta plága. Nokkuð mun hafa
verið eitrað fyrir þær undanfarið, en aldrei með nægilega góðum
samtökum.
19. Störf heilbrigðisnefnda.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Auk eftirlits með almennum þrifnaði, svo sem kjöt-
búðum, brauðgerðarhúsi og' mjólkurstöð, gekkzt heilbrigðisnefnd
fyrir rannsókn á vatni i’ir 15 brunnum í kauptúninu. Um árangur
þeirrar rannsóknar hefir áður verið getið. Þegar eftir rannsóknina
tilkynnti heilbrigðisnefnd hlutaðeigandi brunneigendum árangurinn
og bannaði þeim að nota vatnið til drykkjar nema soðið. Til frekari
varúðar þótti nefndinni hyggilegra að vara alla húseigendur við að
nota vatn úr brunnum til drykkjar framvegis nema soðið, og gaf út
ahnenna auglýsingu þar að lútandi.
Vestmannaeyja. Heilbrigðisfulltrúi og heilbrigðisnefnd líta í sam-
einingu eftir þrifnaði. Uppástungur um hreinlætisaukningu eru tíð-
um að vettugi virtar af bæjarstjórn vegna féleysis og fátæktar bæjar-
félagsins.
Eyrarbakka. Heilbrigðisnefnd mun vera til á Eyrarbakka og hafa
verið lengi. Það er mesta hæglætisnefnd og hefir ekki haldið fundi
síðan 1929. Heilbrigðisreglugerðin fyrir Eyrarbakka er síðan 1908
og því að mörgu leyti úrelt.
20. Bólusetningar.
Tafla XVIII.
Skýrslur og reikningar yfir bólusetningar hafa borizt lir öllum
læknishéruðum nema 4 (Reykhóla, Þistilfj., Norðfj. og Reyðarfj.)
og ná til 5244 frumbólusettra barna og 3263 endurbölusettra. Kom
bólan út á 66% hinna frumbólusettu og 64% hinna endurbólusettu.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Bólusetning fór fram í öllu héraðinu og voru óvenju-
lega mörg börn bólusett vegna þess, að bólusetning hafði ekki farið
fram undanfarin 2 ár vegna farsótta.
Borgarncs. Bólusetning fór fram í vor sem leið um allt héraðið.
Kom bólan vel út, en kvartað var um, að börnin —að minnsta kosti
suin — hefðu orðið mikið veik. Sá ég nokkur þeirra, og voru ból-
urnar stórar og bólga í kring. Þessu fylgdi allmikill liiti hjá sumum
börnum. Á einum bæ hér nærri, en það var í héraði nágrannalæknis,
fengu margar kýr kúabólu á júgrin og urðu sjúkar um tíma. Munu
þær hafa smitazt af barni, sem nýlega hafði verið bólusett.
Flateyrar. Bólusetning fór fram eins og venjulega í öllum hreppum
héraðsins. í sumum hreppunum kom ekki út bóla á neinu frumbólu-
settu barni, svo að útlit er fyrir, að bóluefnið hafi verið misjafnt.