Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Side 102
100
Norðfj. íþróttir iðkaðar af nokkru kappi. Leikfimi stunda bæði
karlar og konur. Af útiíþróttum stunda karlar knattspyrnu, en kon-
ur handboltaleik. Vetraríþróttir eru mjög stopular vegna veðráttu-
unnar. Skautaferðir hafa lítið eitt verið. farnar á leirunni inn af
fjarðarbotninum, þegar frost hefir gefið til þess.
Vestmannaeijja. íþróttir stundaðar mikið að sumrinu til, en á
veturna minna veg'na anna. Sund er iðkað frá því á vorin og fram
á haust. Nýtt íþróttasvæði er nú verið að búa til, en það er inni á svo-
nefndum Póstflötum. Hefir þegar verið gerður þar knattspyrnuvöllur,
sem tekinn var til notkunar síðastliðið sumar. Enn fremur á að gera
þar tennisvelli og æfingavelli fyrir aðrar íþróttir.
Eyrarbakka. Leikfimiskennsla í sambandi við barnaskólana er víð-
ast mjög lítil og' sums staðar engin, svo sem hér á Eyrarbakka. Glím-
ur eru lítið eða ekki iðkaðar. Helzl ber á vaxandi áhuga á skíða-
íþróttinni og enda sundi nokkuð. í Hveragerði var sundlaug í bygg-
ingu síðastliðið ár, sú eina í héraðinu.
Keflavikur. Áhugi er talsverður á íþróttum, eins og t. d. sundi.
10. Alþýðufræðsla um heilbrigðismál.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Eins og áður hefir við hverja skólaskoðun verið brýnd-
ur fyrir börnunum nauðsynlegur þrifnaður og talað við þau um önn-
ur heilbrigðismál.
Reykjarfj. Ég hefi tvisvar á árinu flutt erindi í annað sinn urn
fyrstu hjálp, þegar slys ber að höndum, og í hitt skiptið um þrifnað
og almennt hreinlæti. Auk þess hefi ég kennt líkams- og heilsufræði
við barnaskólann hér svo og leiðbeint fólki eftir föngum í viðtali.
Svarfdæla. Eins og jafnan áður fór fram fræðsla um heilbrigðismál
að loknu skólaeftirliti á hverjum stað.
Vestmannaeyja. Fólki leiðbeint á ýmsan hátt með fræðslu urn ýmis
þrifnaðar- og' hollustumál.
11. Skólaeftirlit.
Tafla IX.
Skýrslur um skólaskoðanir hafa borizt úr öllum læknishéruðum
nema tveimur (Þistilfj. og Reyðarfj.) og ná til 12961 barns.
Samkvæmt heildarskýrslu (tafla IX), sem gerð hefir verið upp úr
skólaskoðunarskýrslum héraðslæknanna, hafa 10261 barn eða 79,2%
allra barnanna notið kennslu í sérstökuin skólahúsum öðrum en
heimavistarskólum. 388 börn eða 3,0% hafa notið kennslu í heima-
vistarskólum, en þau hafa þó hvergi nærri öll verið vistuð i skól-
unum. 1533 börn eða 11,8% hafa notið kennslu í sérstökum her-
bergjum í íbúðarhúsum og 779 eða 6,0% í íbúðarherbergjum innan
um heimilisfólk. Upplýsing'ar um loftrýjni eru ófullkomnar, en það
virðist vera mjög' mismunandi: í hinum almennu skólahúsum er
loftrými kennslustofanna minnst 1,0 m8 og mest 8,3 m3 á barn, en jafn-
ar sig upp með 2,9 m3. í heimavistarskólunum 1,3—3,6 m3; meðaltal
2,6 ms. 1 hinum sérstöku kennsluherbergjum í íbúðarhúsuin 0,7—7,8