Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Qupperneq 53
51
Berklarannsókn fór fram á samtals 8081 barni í 28 læknishéruð-
um, þannig að heildarskýrsla yrði gerð um, sbr. töflu X og umsagnir
héraðslækna um berklaveiki í kafla III, B, 2 hér að framan.
Urn heilsufar skólabarna láta læknar að öðru leyti þessa getið:
Hafnarfj. Tannskemmdir tíðastar. Tannlæknir er við skólann, og
eru nú tennur barnanna betri en áður var. Tonsillitis og adenoid-
vegetationir tíðir kvillar, þó að mér virðist þeim fækka hin síðari
ár. Hryggskekkja sjaldséð. Lús og nit alltaf nokkur.
Skipaskaga. Alls skoðuð 260 börn i barnaskólanum á Akranesi og
unglingaskóla þeim, sem við hann er tengdur. Aðaláherzlan lögð á at-
hugun lungna og næmra sjúkdóma. Tannskemmdir 237, nit 5, kláði
3, eitlaþroti 73, kokeitlaþroti 23, hryggskekkja 9 (þó á lágu stigi),
heyrnarsljóleiki 4, conjunctivitis 2, blóðleysi 19. Eins og undanfarin
ár hafði hjúkrunarkona eftirlit með nit og lús. Þessi ráðstöfun hefir
haft þann ágæta árangur, að svo virðist sem þessi óþrif séu að út-
rýmast úr skólanum, þar sem aðeins fundust 5 börn með þenna
kvilla. í sveitum (60 börn): Lús og' nit höfðu 27, og eru þá talin
öll börn, sem minnsti vottur af nit sást i. Lús fannst aðeins í 1 börn-
um, tannskemmdir höfðu 44, 1 hafði blóðleysi.
Borgarfj. Heilsufar skólabarna yfirleitt gott og gátu öll notið
kennslu.
Borgarnes. Heilsufar barnanna sæmilega gott. Mest um tann-
skemmdir, eitlaþrota og eitlaauka. Óþrifnaðarkvillar finnast nú naum-
ast á börnum hér. 1 barni var vísað frá um stund vegna bronchitis
og öðru vegna scabies (börn alls 135).
Ólafsvíkur. Eitlaþrota á hálsi höfðu 156, blóðleysi 13, hryggskekkju
2, hypertrophia tonsillar. 32, ófullkomna sjón 27, ófullkomna heyrn
14, blepharitis 8, psoriasis 1, impetigo 1 (börn alls 229).
Stykkishólms. Tannskemmdirnar eru langalgengasti kvilli skóla-
barna. Lúsin og nitin verða næst í röðinni.
Dala. Eitlaþroti 27, kokeitlaauki 11, psoriasis 2, magakvef 2,
lungnaltvef 1 (börn alls 123).
Flateyjar. Mest bar á lús og tannskemmdum líkt og' áður og' smá-
pharyngitum sem afleiðingum af tannskemmdunum.
Patreksfj. Eitlaþroti 60, eitlingaauki 39, kokeitlingaauki 2, anaemia
4, herpes labialis 1, onychogryphosis 2, otit. med, supp. dextr. 1,
herpes tonsur. 4, fract. ulnae et radii sin. 1, pes varus 1, verrucae man.
16, blepharit. sin. 3, nit eða lús 10, skakkbak 2, combustio 1, jiharyn-
gitis 1, munnöndun 2, angina tonsill. 1, conjunctivit. 2, alopecia
areata 1, blepharoconjunctivit. 1, impetigo 1 (börn alls 178).
Bíldudals. Tannskemmdir mjög algengar hjá skólabörnum eins og
fyrr. Óþrifakvillar fara stöðugt minnkandi. Er það vafalaust mikið
að þakka skoðuninni, sem mæðurnar eig'a alltaf yfirvofandi á haustin.
Flateyrar. Talsvert bar á lús í skólabörnum, aðallega í kaupstöð-
unum. Þar var nærri þriðja hvert barn með lús eða nit. Hér á Flat-
eyri ágerðist þetta, þegar frain á veturinn leið, svo að ég varð að gera
tvær atrennur að því að skoða öll skólabörnin. Tók ég þau, sem
lúsug voru, og lét aflúsa þau. Þessari nýbreytni var af mörgum for-
eldrum illa tekið, og töldu þeir sér gerða óvirðingu ineð þessu. En