Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 82
80
1 Rvík: Björgvin Finnsson, Eyþór Gunnarsson, Ófeigur J. Ófeigs-
son, Karl S. Jónasson og Kristinn Stefánsson. Á Akureyri: Jóhann
Þorkellsson. Á Grenivík: Árni B. Árnason.
3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús. Töflur XVI—XII.
Sjúlcrahús og sjúkraskýli teljast á þessu ári samkværnt töflu XVI
45 alls. Hefir þeim fjölgað um 2 á árinu, sjúkraskýlið í Árnesi, sem
ekki hefir verið starfrækt fyrr, og sjúkrahúsið á Húsavík.
Rúmafjöldi sjúkrahúsa telst 1157, og' koma þá 9,8 rúm á hverja
1000 íbúa. Almennu sjúkrahúsin teljast 37 með samtals 658 rúmum
eða 5,6%0 og hefir fjölgað um 17 rúm. Á heilsuhælum eru rúmin
talin 284 eða 2,4%0.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Kvenfélag Akraness hefir eins og áður safnað fé til
fyrirhugaðs sjúkraskýlis og á í sjóði nú kr. 26000,00. Hallgrímur
Björnsson hefir eins og áður haft ljóslækningar, kvarzljós, og hafði
á árinu 10 sjúklinga.
Borgarnes. Sjúkrahús er hér ekkert, sem er mjög bagalegt, og þyrfti
helzt úr að bæta, en ekki þyrfti það að vera stórt né dýrt.
Stykkishólms. Þetta er fyrsta árið, sein nýja sjúkrahús kaþólska
trúboðsins hefir starfað. Það var tekið til notkunar seinni hluta
september 1936. Til ársloka 1937 hafa legið 50 sjúklingar i sjúkra-
húsinu. Eins og ég gat um í skýrslu minni 1935, er húsið hið rnyndar-
legasta að öllu leyti, útbúið ýmsum góðum tækjum, og hjúkrunar-
systur virðast starfi sínu vaxnar og natnar við sjúklinga. Hitt fær
engum dulizt, að sjúkrahúsið er alltof stórt á þessum stað, og verður
reksturskostnaður þess mjög dýr. Er leitt til þess að vita, að þarna
skuli standa svo mikið ónotað húsrúm i öllum sjúkrarúmavandræð-
unum, sem annars eru í landinu.
Dala. Aðsókn að sjúkraskýlinu Htil og flest smávægilegt, sem þar
var aðhafzt. Fáum visað í önnur sjúkrahús.
Flateyjar. Hér enn sem fyrr vandræði, ef hýsa þarf sjúkling.
Flateyrar. Fram að því, að ég kom í héraðið var sjúkraskýlið lítið
eða ekki notað á árinu. En síðan ég kom hingað hefi ég jafnaðarlega
haft hér einhverja sjúklinga, jafnvel þó að ég sjái, að ýmislegt vanti
til þess, að aðstaða sé hér eins og æskilegt væri á sjúkrahúsi. Hitt
hefir verið þyngra á metunum hjá mér, að ég álit, að í héraði, sem
er þó þetta mannmargt, þar sem þó nokkrir togarar leggja upp afla
að sumrinu, og þar sem æði margir útlendir togarar leita læknis-
hjálpar, þar verði óhjákvæmilega að vera aðstaða til að taka á móti
sjúklingum. Enda hefir á þessuin ársparti að minnsta kosti eitt
mannslif bjargazt fyrir þá aðstöðu. Síðan ég tók við, hafa á árinu
verið 28 sjúklingar á sjúkraskýlinu, legudagar 445. Af þessum sjúk-
lingum hafa 9 verið innanhéraðsmenn, 11 utanhéraðsmenn íslenzk-
ir og 8 útlendingar.
Hóls. Vandræði að koma sjúklingum á Sjúkrahús ísafjarðar vegna
lélegrar afkomu hreppsfélagsins.