Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1937, Blaðsíða 99
97
dauða“ til hátíðabrigðis. Stúkan á Höfn hjarir aðeins. Menn telja
hana óþarfa, þar sem enginn drekkur. Aftur á móti hafa sum ung-
mennafélögin tekið aftur upp vínbindindi, sem þau öll vor.u búin að
leggja niður.
Vestmannaeijja. Áfengisnautn hér hið sama böl og' áður, og veldur
hún miklu böli og mannskemmdum, sérstaklega að því er unglinga
snertir. Kaffi og tóbaksnotkun lík og áður.
Eyrarbakka. Áfengisnautn mún fátíð hversdagslega. Þó mun tals-
verðu eytt fyrir vín alls yfir, enda fer allt í algleyming á samkom-
um. Kaffi drekka svo að segja allir í tíma og ótírna. Tóbaksnautn er
veruleg. Munntóbak er að vísu að hverfa, en fjöldi eldri manna notar
neftóbak, og allmargir reykja pípu lítils háttar. Langmesta tóbaks-
notkunin eru vindlingar, sem reyktir eru hóflaust og jafnt af konum
sem körlurn. Kaupmenn á Eyrarbakka selja tóbak fyrir 20—25 þús-
und krónur árlega. Vindlingar eru langstærsti liðurinn (14—16 þús-
und krónur). Lítil verzlun er við utanplássmenn, svo að kaupend-
urnir eru nær eingöngu þorpsbúar sjálfir, einir 600 að tölu.
Grímsnes. Kaffineyzla mætti vera minni. Tóbaksnautn nokkur, en
þó álít ég', að hún sé ekki eins mikil hér og í sjóþorpum og kaup-
túnum. Áfengisnautn er nokkur, einkum meðal ungra manna á
samkomum. Stúka var stofnuð síðastliðið haust í Biskupstungna-
hreppi.
Keflavíkur. Töluvert er drukkið á samkomum, og tóbaksnautn
minnkar ekki.
8. Meðferð ungbarna.
Ljósmæður geta þess í skýrslum sínum (sbr. töflu XII) hvernig 2207
börn af 2301, sem skýrslurnar ná til, Voru nærð eftir fæðinguna. Eru
hundraðstölur sem hér segir (tölur síðastliðins árs í svigum):
Brjóst fengu 86,7% (86,9%)
Brjóst og pela fengu 5,6 ( 5,9—)
Pela fengu 7,7— ( 7,2—)
í Reykjavík líta tölurnar þannig' út:
Brjóst fengu 97,4 - (97,6—)
Brjóst og pela fengu . 0,8 ( 1,2—)
Pela fengu 1,8 ( L2—)
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Er í allgóðu lai þ. Flestar mæður hafa börn sin á brjósti
Lýsisgjafir mjög' almennar.
Borgarfj. Lítið um kvilla í ungbörnum. Þó fékk eitt ungbarn (pela-
barn) tetani, en batnaði um síðii
Borgarnes. Meðferð ungbarna er góð, og ungbarnadauði hefir eng-
inn verið þetta ár.
Hesteijrar. Flest börn eru höfð á brjósti. Meðferð þeirra yfirleitt góð.
Reykjarfj. Meðferð ungbarna víðast hvar sæmileg, eftir því sem
efni og ástæður leyfa. Flestar mæður hafa börn sín á brjósti, og
lýsisgjafir eru orðnar nokkuð almennar.
Miöfj. Meðferð ungbarna mun góð.
Blöndnós. Notkun lýsis handa sniábörnum fer vaxandi. Sinn þátt
13