Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Qupperneq 19
17
veikin væg', og engum varð hún að bana. Þó var 18 ára stúlka hætt
komin.
Reykhóla. Fleiri en skrásettir voru munu liafa veikzt.
Bíldudals. Léttur faraldur apríl—ágúst. Yfirleitt mjög væg.
Þingeyrar. Væg.
Flateyrar. Barst hingað í september og var viðloðandi í héraðinu
til ársloka. Veikin var væg, svo að tiltölulega fáir leituðu læknis, en
hún mun hafa náð æði mikilli útbreiðslu. 1 gamalmenni dó af af-
leiðingum veikinnar.
Hóls. í desemberinánuði gekk hér blóðsótt. Hafði borið á niður-
gangi í mánuðunum október og nóvember og verið skrásett sem
gastroenteritis acuta. Þegar kom fram í desember, fóru fleiri að
veikjast með svipuðum einkennuin og verið hafði. Síðar varð sú
breyting á, að meira tók að bera á blóði í hægðum.
ísafi. Veikin var alls ekki mjög illkynjuð, en þó dó 7 ára barn í
Engidal hastarlega, veiktist um hádegi og var í andarslitrum, er
læknis var vitjað urn 21-leytið sama dag.
Ögur. Blóðsótt barst í héraðið í september. Gekk í fyrstu dreift yfir.
Tók nokkur heimili í hverjum hreppi. Seinna tíndust þau öll upp, er
veikin gaus upp aftur og aftur á hinum ólíklegustu stöðum. Á sum
heimili virtist veikin koma tvisvar. Þannig var veikin að stinga sér
niður allt til áramóta, og virtust þá flest heimili, að minnsta kosti í
sveitunum, vera búin að taka hana. Margir urðu þungt haldnir, sér-
staklega unglingar, urðu að ligg'ja í rúrninu 1—2 vikur eða lengur,
fengu yfir 40° hita og voru lengi að ná sér.
Reykjarfi. Fór um héraðið í sumar og dreifð tilfelli á afskekktustu
bæjum fram eftir velri. Yfirleitt væg'.
Hólmavikur. Barst hingað í ágústmánuði, líklega úr Reykhólahér-
aði, breiddist mjög' ört út fyrst í stað, en síðan hægar og strjálla.
Veiktust sums staðar allir á heimilunum, og þótti allhvimleiður kvilli.
Lág'u margir viku eða lengur.
Sauðárkróks. Ekkert tilfelli skráð, en faraldur sá, er kemur upp í
júní—júlí og' skráður er sem iðrakvef, mun í flestum tilfellum hafa
verið paradysenteria sú, sem víða geklc annars staðar.
Ólafsfi. Gerði töluvert vart við sig' í október—nóvember.
Akureyrar. Einn af læknum bæjarins hefir talið fram sjúklinga
með þennan sjúkdóm, en ekki hafa fnndizt bac. dysenteriae við rækt-
un frá 2 sjúklingum, sem ræktað var frá, og þyltir mér sennilegast,
að um þung tilfelli af gastroenteritis hafi verið að ræða í öllum
þessum tilfellum.
Reykdæla. Faraldur af iðrakvefi gekk um héraðið mestan hluta árs-
ins, og voru einna mest brögð að því sumarmánuðina. Yfirleitt
var kvilli þessi vægur. Þó veiktust sumir sjúldingarnir allhastarlega.
Veikin lagðist einna þyngst á hraust fólk á bezta aldri.
Öxarfi. Langmesti faraldur ársins. Barst hingað í janúar úr Húsa-
víkurhéraði, í maí úr Reykdælahéraði (féll af skrá) og í júní úr
Þistilfjarðarhéraði, en var i öll skiptin stöðvuð með einangrun og
sótthreinsun. Svo kom hún til Raufarhafnar í júlí, og varð þá ekki við
neitt ráðið lengur. Víða á heimilum tók hún hvert mannsbarn, en
3