Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Síða 44
42
Flateyjar. Engin nýsraitun á skólabörnum. 1 aðkomubarn
Pirquet +. Önnur börn að einu undanskildu aðflutt og annars staðar
smituð. Sjúklingur með berklasýkla í þvagi, er annað nýrað hefir
áður verið tekið úr, dvelur heima og er brattur að öðru leyti en þvi,
að hann fær stöku sinnum nýrnabiæðingarköst. Er Jreima með leyfi
berklayfirlæknis. Kona, 66 ára, skráð með lungnaberkla, dvelur einnig
hér í húsi með 2 öðrum gömlum konum, og kalla ég, að hún sé hættu-
laus, því að á því heimili, sem hún var tekin af, er hún var upp-
götvuð, eru 9 eða 10 börn, öll Pirquet Tel ég, að berklaveiki ætti
að geta dáið út hér á fvrirsjáanlegum tima.
Bildudals. Berklar virðast engir í héraðinu sem stendur.
Þingeyrar. 14 ára drengur veiktist af tb. primaria. Var I3 -f- fyrir
4 mánuðum. Var tíður gestur á heimili 20 ára súlku, er nokkru síðar
veikist af pleuritis og tb. pulmonum. Var hún P + á skólaaldri.
t'ppalin í berklaumhverfi. 28 ára kona féklc canc. mammae incip.
Var skorin upp. Eftir 8 daga legu af þeim ástæðum fékk hún snögg-
lega sótthita, sem reyndist stafa frá tb. primaria. Fyrir 2 mánuðum
var hún P -r-. Á þessu tímabili var hún á ferðalagi, gisti á berkla-
heimili og kveðst vegna ókunnugleika hafa sofið þar hjá berldaveikri
konu. 56 ára karlmaður endurskráður. Hefir dvalið um 3 ára skeið
á Vífilsstöðum. Vinnufær öðru hverju í 2 ár. Pirquetprófun fór fram
á öllum héraðsbúum 1—20 ára gömlum í októbermánuði. Af körlum
reyndust 10,4+ smitaðir. Af konum 13,6% smitaðir. Alls 11,6%
smitaðir. Er dálítið fróðlegt að bera þetta saman við útkornu skóla-
barna. Af þeim reyndust 11,2% smituð. Má því heita, að prósentu-
talan sé nákvæmlega sú sama. Öll börn frá 1—7 ára nema 1 reyndust
ósmituð. Smitaðir nú, en ósmitaðir í fyrra, reyndust 4. 2 ofan við
skólaaldur og 2 skólabörn 12 ára gömul. Nýsmitaðir ofan við skóla-
aldur voru drengur 15 ára, sem liefir á tímabilinu dvalið á gömlu
berklaheimili, sem margir hafa smitazt á, og stúlka 19 ára, sem liefir
dvalið um skeið utan héraðs. Hvar hún hefir smitazt er ókunnugt.
Á skólabörnum var við skólaskoðun gerð Pirquetprófun með svofelld-
um árangri: Farskólinn í Auðkúluhreppi: 14% +. Eng-
inn nýr bætzt við. F a r s k ó 1 i n n í K e 1 d u d a 1: 18 % -j-. Fækkar
þeim smituðu smám saman ár frá ári. Sennilega hefir uppsprettan
þar verið gömul kona, sem nú er dáin fyrir 11 árum. Var alltaf
hraust, en við andlát hennar hættu börn heimilisins að smitast.
Barnaskólinn á Þingeyri: 12,5% -j-. Áður sóttu börn þau,
er nú ganga á Hvammsskóla, þenna skóla. Þau eru öll, 16 talsins, P -í-.
Myndi því hagur Þingeyrarskóla batna að mun, ef þau væru talin
með. Yrði þá tala smitaðra 9,0%. F a r s k ó 1 i n n í Haukadal: 1
smitaður af 17, eða 5,9%. Hinn eini smitaði er 12 ára telpa, dóttir
kennarans, er þar var og nú dvelur á Vífilsstöðum. Farskólinn
að Núpi: 3 smitaðir af 11, eða 27,3%. Er hann nú hæstur í röðinni
í héraðinu. Fer það að vonum, því að þar er og hefir verið hættu-
legasta umhverfið. Meðal annars er þetta nánasta umhverfi liéraðs-
skólans á Núpi. Hefir þó eigi borið á þvi, að nemendur hans smit-
uðust yfir skólatímann. Fyrir 4 árum voru allir nemendur þessa
skóla P -5-. Hefir það auðvitað verið tilviljun ein. Farskólinn