Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Side 45
43
að Lambalilaði: 1 smitaður af 11, eða 9,1%, 12 ára drengur. Var
hann P -4- síðasta haust. Hefir um langt skeið haft bronchitis chronica,
rachitiskur og hefir hernia ingvinalis duplex. Sinávaxinn og þroska-
lítill. Á heimilinu eru foreldrar, amma og 1 bróðir 16 ára. Allt P -4-.
Bróðirinn þroskalegur og hraustur. Smitun er eigi um að ræða á
heimilinu. Heldur eigi í nánasta umhverfi. Síðastliðið sumar dvaldi
hann hér í kauptúninu vegna fingurmeins. Sterkar líkur til, að hann
hafi smitazt hér. Á heimili því, er hann dvaldi á hér, er eigi vitað um
neinn smitbera. 2 synir á því heimili fengu fyrir ca. 12 árum tb.
primaria, en hafa síðan verið alhraustir. F a r s k ó 1 i n n í H v a m m i:
Af 14 nemendur reyndust allir P -4-.
Flateyrar. Berldasjúklingar færri en undanfarin ár.
Hóls. Aðstoðarmaður berklayfirlæknis kom hingað á haustmán-
uðum með gegnlýsingartæki til rannsókna á héraðsbúum. Voru
flestir berklaprófaðir og' þeir siðan gegnlýstir, er þurfa þótti. Nokkuð
vildi bera á því, að einstaklingar tækju ekki vel í að sækja síðar til
berklavarnarstöðvarinnar á Isafirði til nýrrar gegnlýsingar, einkum
ef þeir hinir sömu kenndu sér einskis meins. Enda hefir það komið
á daginn, að töluverð tregða hefir verið sýnd í þessu efni af sumu
fólki.
Ögur. 1 nýtt tilfelli í haust. Hafði sjúklingurinn áður smitað 2
sumardvalarbörn, er dvöldu á heimili hans. Sjúklingurinn er af
gamalli berklaætt og hafði dvalið langdvölum að heiman. Er nú
kominn á Vífilsstaði. Annað heimilisfólk var rannsakað, en reyndist
hraust í lungum. Berklapróf gert á öllutn skólabörnum í héraðinu
eins og' að undanförnu og' á nokkrum börnum innan skólaaldurs.
4 skólabörn, sem áður höfðu verið Moro -4-, voru nú orðin Moro +,
og eru 3 þeirra frá sama skóla á Snæfjallaströnd.
Reykjarfj. Enginn er hér með sinitandi berkla, svo að vitað sé. Við
leit berklayfirlæknis í fyrra fannst ekki smitberi. Virðast mér þessi
mál komin í gott horf hér. Aðeins 1 barn nú statt á sjúkrahúsi utan
héraðs vegna berklaveiki. Hundraðshluti Pirquet -4- barna er að vísu
hár, en það eru 12—14 ára börnin, sem því valda.
Hólmavikur. 2 sjúklingar skráðir í fyrsta sinn. Báðir gengu með
pleuritis exsudativa og fengu sæmilegan bata. Auk þess tók veikin
sig upp í 2 gömlum berklasjiiklingum, þó ekki hættulega. Hefi engan
lundið með smitandi berkla á þessu ári.
Miðfj. 1 sjúklingur, áður tekinn af skrá, en hafði haft „hilus-
berkla“, fékk smitandi lungnaberkla og var fluttur á Vífilsstaði. Aðrir
nýir berklasjúklingar hafa eigi komið í ljós, og virðist berklaveiki
í héraðinu greinileg'a fara minnkandi. Berklayfirbeknir kom hingað
i sumar og gegnlýsti fjölda fólks.
Rlönduós. Virðist vera í áframhaldandi rénun í héraðinu. Á árinu
var aðeins skráður 1 nýr sjúklingur. Skipulagðar gegnlýsingar hafa
verið framkvænidar af berklayfirlækninum og mér bæði hér og á
Skagaströnd og allir grunsamlegir einstaklingar verið fengnir til skoð-
unar. Aftur á móti voru ekki gerð kerfisbundin berklapróf á skóla-
börnum að þessu sinni.
Sauðárkróks. Skráðir 6 nýir berklasjúklingar á árinu og' auk þess