Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Síða 106
104
Fita 2,0—22,5%, oftast 6,0—10,0%. Gerlafjöldi í 3 sýnishornum
10000 í 1 sm3, í 3 sýnishornuin 10000—100000, í 3 sýnishornum
100000-—1000000 og í 6 sýnishornum 1000000—10000000. í 6 sýnis-
hornum fundust ekki kóligerlar í 1/10 sm3, í 4 sýnishornum fundust
þeir í allt aÖ 1/1000 sm3, í 5 sýnishornum í allt að 1/10000 sm* og í
einu í 1/100000 sm3.
Vatn: Rannsökuð 6 sýnishorn af vatni (gerlatalning, agar 37° C),
í einu sýnishorni 2500, annars 65—220 í 1 sin3, gerlafjöldi við ræktun
í gelatina 3000—26000 í 1 sm3.
Aldinsafi og aldinsöft: Saft reyndist gerjuð í 1 sýnishorni.
A1 d i n s u 11 a o g a 1 d i n m a u k : í 1 sýnishorni of mikið vatn.
Auk þess litað með tjörulit.
Ávextir (þurrkaðir): í 2 sýnishornum var brennisteinssýrlingur
(SO2). í 1 sýnishorni fundust skordýraleifar.
Edik og edikssýra: í 2 sýnishornum voru óhreinindi.
F i s k u r o g f i s k m e t i: 2 sýnishorn af harðfiski óhrein. 1
sýnishorn af fiskbollum, sem farnar voru að úldna.
Kaffi og kaffibætir: Í6 sýnishornum af hrenndu og möluðu
kaffi var of mikið vatn.
Kjöt og kjötmeti: í 2 sýnishornum af kjötfarsi fannst lítið
eitt af brennisteinssýrlingi. 3 sýnishorn af saltkjöti óhæf til neyzlu
vegna skemmda.
Mjöl o. f 1.: I 14 sýnishornum (aðallega hveiti og baunir) voru
skordýraleifar og skemmdir af völdum skordýra. í 3 sýnishornum
skemmdir af raka. „Heilhveitibrauð“ úr blönduðu hveiti, en ekki heil-
liveiti.
Oslar: Of lítil fita í 2 sýnishornum (41,5% og 42,9% í þurrefni
í stað 45%).
Niðursuðuvörur: „Bombage" á 1 dós, en engin merki rotn-
unar.
Smjör: Of mikið vatn í 3 sýnishornum.
Smjörlíki: I 2 sýnishornum fannst of mikið vatn (16,41% og
16,43%). 1 3 sýnishorn vantaði sterkju.
Sykur: 1 sýnishorn skemmt af raka.
Ý m i s 1 e g t: 3 sýnishorn af leikföngum úr hreinu blýi.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Rvík. Athugaðir voru 23 mjólkurbúðir og gerðar athugasemdir við
17 þeirra, einkum vegna vöntunar á kælitækjum og ófullkominnar
loftræstingar. 2 þeirra voru dæmdar ónothæfar og önnur þeirra lögð
niður 1941. Kjötbúðir skoðaðar 27 talsins, og voru gerðar athuga-
semdir við 4 þeirra, einkum með tilliti til umgengni.
Akureyrar. Hefi annað veifið tekið matvælasýnishorn og sent til
matvælaeftirlits ríkisins til rannsóknár, og hefir aðeins í einu tilfelli
1 slíkt sýnishorn reynzt falsað, en við áminningu lofaði framleið-
andi að kippa þessu þegar í lag, og' verður haft eftirlit með, að svo
verði gert. Einnig hefi ég' annað veifið rannsakað hreinlæti og fitu*
magn þeirrar mjólkur, sem hér er á boðstólum, og hefir hún jafnan
reynzt sæmileg.