Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Síða 119
117
fara í vöxt, að menn leggi sér iil nmnns svo að segja hvaða óþverra
sem vera skal, ei' hægt er að verða drukkinn af honum, svo sem bór-
spíritus, suðuspíritus, hárspíritus, að ég ekki tali um brjóstsaft
(spiritus ammoniacatus anisatus og tinctura thebaica benzoica). Verð
ég ó vertíðum stöðugt að vera á verði, að ekki sé allt, sem áfengt
getur talizt, drukkið upp fyrir mér á svipstundu. Og fæstir af þessum
mönnum eru neinir alkóhólistar, heldur gera þetta af rælni til að
vera með.
Vestmannaeyja. Drykkjuskapur með minna móti síðla árs. Kaffi-
og tóbaksneyzla svipuð og verið hefir.
Eyrarbakka. Notkun tóbaks er vafalaust svipuð og verið hefir, sízt
minni, en ekki liefi ég getað orðið þess var, að vínnautn fari vax-
andi, að minnsta kosti ekki í þeim mæli, að til drykkjuskapar geli
talizt.
Keflavíkur. Áfengisnautn farið í vöxt á skemmtunum, og því fylgir
aukinn kostnaður vegna slagsinála og annarrar ósvífni, sein fylgir í för
nautnarinnar. Það er nú komið svo, að það þarf 4 Iögreglumenn við
hverja skemmtun — vílja alls ekki koma færri —• því að síðast, er
3 voru, voru þeir yfirbugaðir af óregluseggjunum og jafnvel meiddir.
Hvernig verður æskan \ið áframhaldandi siðfræði þessu líka?
8. Meðferð ungbarna.
Ljósmæður geta þess í skýrslum sínum (sbr. töflu XIII), hvernig
2367 börn af 2440, sem skýrslurnar ná til, voru nærð eftir fæðinguna.
Eru hundraðstölur sem liér segir (tölur siðastliðins árs í svigum):
Brjóst fengu ...................... 89,7% (87,8%)
Hrjóst og pela fengu ............... 4,6— ( 5,7—)
Peía feng'u ..........-............ 5,7— ( 6,5—)
í Reykjavík líta tölurnar þannig út:
Brjöst fengu ...................... 96,6—- (97,5—)
Brjóst og' pela fengu ............. 1,6— ( 1,3—)
Pela fengu ........................ 1,8— ( 1,2—)
Læknar láta þessa getið:
Borgarfj. Lítið um kvilla í ungbörnum, þó að meðferðinni sé víða
ábóta vant. Flestar konur hafa börn sín á brjósti.
Ólafsvikur. Flest börn eru höfð á brjósti, og er meðferð barnanna
yfirleitt góð. Ungbarnakvillar mjög fátíðir.
Flateijjar. Meðferð ungbarna tel ég sæmilega. Beinkröm sjaldgæf.
Hóls. Ungbarnadauði enginn.
Bildudals. Virðist í góðu lagi. Ungbarnadauði þekkist varla. Flest
öll börn á brjósti, og farið er að gefa börnum lýsi þegar snemma á
fyrsta ári.
Ögur. Meðferð úngbarna má yfirleitt teljast í góðu lagi.
Regkjarjj. Meðferð ungbarna góð og hafa allar konur, sem ein-
hverja heilsu hafa, börn sín á brjósti.
Miðfj. Meðferð ungbarna yfirleitt sæmileg.
Blönduós. Meðferð ungbarna yfirleitt góð. Flest fá brjóst og tals-
vert mörg lýsi.