Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Síða 121
119
smiðjanna hefir leyft, að gufa, sein verksmiðjunni er ónýt, væri leidtl
gegn um laugina, og hefir þetta nægt til að fullhita hana allan síldar-
tímann. Þarna hefir í 2 sumur verið kennt sund, og hefir þátttakan
verið það almenn, að nú mun varla til barn, 6 ára eða eldra, sem kann
ckki að fleyta sér. Skannnt frá Suðureyri í Súgandafirði er ág'æt sund-
laug, hituð með laugarvatni. Þar hafa nú í nokkur sumur verið haldin
sundnámskeið, sem hafa verið vel sótt. Við sundlaugina í Súganda-
firði er sólskýli, sem hefir verið milcið notað.
Hóls. Sundlaugin ekki starfrækt síðast liðið sumar.
Ögur. Iþróttir nokkuð stundaðar við Reykjanesskólann, sund,
knattspyrna og skíðaferðir á vetrum. Annars staðar ekki.
Regkjarff. Íþróttalíf ekkert til.
.1 Iiðfí. Áhugi á íþróttum talsverður, einkum hér á Hvammstanga.
Blönduós. Iþróttir sára lítið stundaðar nema knattspyrna á stöku
stað. Sundkennsla i Reykjálaug á Reykjabraut hefir nú alveg lagzt
niður. Áður en hernámið hófst, leituðu ýmsir að Reykjaskóla í Hrúta-
firði tii sundkennslu, og varð það til þess, að ekki fékkst næg þátt-
taka um sund í Reykjalaug, en nokkuð vildi bera á því, að unglingar,
sein koniu frá sundnámi að Reykjum i Hrútafirði, væru með evrna-
bólgur.
Sauðárkróks. Iþróttir frekar lítið stundaðar. Fimleikakennsla fer
fram í harnaskólanum part úr vetrinum.
Ólafsff: Skíðaíþróttin mikið iðkuð að venju. Iþróttafélagið hélt
skíðakennara um tíma. Einnig kennt sund á þess vegum í hinni köldu
sundlaug. Sömuleiðis gekkst sama félag fyrir fimleikanámskeiði fyrra
hluta vetrar. I haust var hafin lítils háttar fimleikakennsla í barna-
skólanuin. Slysavarnarsveit karla og kvenna ásaint iþróttafélaginu
Iiafa byrjað að vinna að sundlaugarmálinu.
Svarfdæla. 0 sundnámskeið í Sundskála Svarfdæla. U. M. F. Svarf-
dæla gekkst fyrir skíðanámskeiði, sem stóð í 2 vikur og 1 tveggja
vikna námskeiði i fimleikum og íslenzkri glímu. Auk þess iðkar flokk-
ur félagsmanna knattspyrnu. Iðkun skíðaiþróttarinnar eykst hröðum
skrefum með ungu kynslóðinni.
Akureyrar. íþróttir eru hér með íniklum blóma, sérstakleg'a alls
konar útiíþróttir.
Höfðahverfis. Dauft yfir íþróttalífi hér, en heldur virðist þó vera
að lifna yfir því. Var fenginn hingað skíðakennari fyrir tilhlutun
ungmennafélagsins, sem hér starfar í héraðinu, um II vikna tima.
Var þátttaka ágæt hjá fullorðnum og skólabörnum. Kinnig var hér
um tíma æfð glíma. Knattspyrna nokkuð iðkuð.
Þistilff. Ungmennasamband N.-Þingeyinga gekkst fyrir iþróttanám-
skeiði hér í Þórshöfn s. 1. vetur. Var víst sæinileg' þátttaka í því og
árangur töluverður. Komið hefir til mála að koma upp sundlaug í
Þórshöfn og nota kælivatnið af frystivélunum til hitunar.
Hróarsturigu. íþróttir heldur að glæðast. Skíðanámskeið haldin á
Eiðum á vetrum, og hefir leitt til þess, að sú íþrótt hefir smádreifzt
um allt héraðið. Búið að steypa sundlaug við Eiðaskóla, en ekki
tekin til notkunar enn. Á að hita laugavatnið með rafmagni að miklu
leyti.