Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Page 122
120
Seyðisjj. Því íniður er íþróttalífið heldur dauft. íþróttafélag þó starf-
andi og liefir kennara uin tíma að vetrinum og sundkennara að sumr-
inu, en skilyrði eru slæm til sundiðkana, aðeins köld tjörn með forar-
botni. í barnaskólanum er kennd Ieikfimi. Ung'ir piltar hafa myndað
með sér skíðafélag og komið sér upp skíðaskála. Skiðakennara fá þeir
sér mánaðartíma að vetrinum.
Rerufj. Knattspyrna iðkuð af talsverðum áhuga síðast liðið sumar.
Hornafj. íþróttaáhugi smáglæðist. Ungmennafélagið Sindri á Höfn
er langt komið jneð að koma sér upp íþróttavelli. Sund hefir flest
sumur verið kennt einhvers staðar í héraðinu.
Vestmannaeyja. íþróttir stundaðar meira og minna allt árið nema
á vetrarvertíð. Skátafélag starfar hér.
Keflavikur. Töluverður áhug'i á íþróttum, t. d. sundi.
10. Alþýðufræðsla um heilbrigðismál.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. í unglingaskóla, sem er starfræktur hér í kauptúninu
í sambandi við barnaskólann, hefir héraðslæknir kennt „líkams- og
heilsufræði“. Einnig var haldið stutt námskeið í hjálp í viðlögum í
sambandi við starf loftvarnarnefndar.
Blönduós. Ég hefi haldið fyrirlestur í þessa átt í kvennaskólanum,
en þýðingarlítið að bjóða fólki upp á fyrirlestra um slík efni, nema
í sambandi við sérstök námskeið. Það er eins og hundi sé boðin heil
kaka, ef fá á unga fólkið saman til annars en dansa eða karlana til
að hlusta á aðra en sjálfa sig, en hér er hið mesta málæði við liaft
á öllum umræðufundum.
Ólafsfj. A árinu flutti ég eitt erindi um herklaveiki og berklavarnir.
Akureyrar. Héraðslæknir hefir flutt nokkur erindi um óþrifakvilla
og aukið hreinlæti, bæði í Akureyrarbæ og úti um sveitir héraðsins,
og' sömuleiðis erindi um atvinnusjúkdóma.
Reykdæla. Erindi um kaffi, tóbak og áfengi var flutt á samkomu.
Hróarstungu. Námskeið í „hjálp í viðlögum“ hefir héraðslæknir
liaft á Eiðum í sambandi við skíðavikuna á vetrum.
Vestmannaeyja. Fólki leiðbeint með blaðagreinum og á ýmsan hátt.
11. Skólaeftirlit.
Tafla X.
Skýrslur um skólaskoðanir hafa borizt úr öllum læknishéruðum
nema einu (Hafnarfj.) og ná til 13462 barna.
Samkvæmt heildarskýrslu (tafla X), sem gerð hefir verið upp úr
skólaskoðunarskýrslum héraðslæknanna, hafa 10461 barn, eða 77,7
allra barnanna, notið kennslu í sérstökum skólahúsum öðrum en
heimavistarskólum. 331 barn, eða 2,5%, hafa notið kennslu í heima-
vistarskólum, en þau hafa þó hverg'i nærri öll verið vistuð í skólun-
um. 1739 börn, eða 12,9%, hafa notið kennslu í sérsökum herbergj-
um í íbúðarhúsum og' 931, eða 6,9%, í íbúðarherbergjum innan um
heimilisfólk. Upplýsingar um loftrými eru ófullkomnar, en það virðist
vera mjög mismunandi: í hinum almennu skólahúsum er loftrými í
kennslustofum minnst 1,3 m® og mest 7,8 m3 á barn, en jafnar sig