Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Side 125
123
Þistilfi. Skólanefndir trássast við að láta salerni fylgja skólastöð-
unum, líklega með góðu samþykki þeirra háttvirtu, sem yfir þá eru
settir.1) Að minnsta kosti hefir þess aldrei heyrzt g'etið, að skóla-
nefndir hafi feng'ið orð um það úr neinni annarri átt, að kamrar væru
tilhlýðileg þægindi á skólastöðum. Svo langt gekk hú í ár, að á ein-
um skólastaðnum, sem hafði haft salerni 1939, var nú húið að fjar-
lægja það. Skólanefnd Sauðaneshrepps þó undan skilin þessu ámæli.
í Þórshöfn var byrjað haustið 1940 að gefa þeim skólabörnum, er
mér þótti ástæða til, lýsi daglega í skólanum, og mjólk var gefin
hörnum af einu fátæku heimili, sem var sérstaklega illa á vegi statt
með mjólk.
Hrónrstungu. Farskólamálið sama vandræðamál og verið hefir. í
einuin hreppi féll kennsla alveg niður, vegna þess að ómögulegt var
að koma skólanum fyrir.
Seyðisfj. Barnaskóli kaupstaðarins gat ekki tekið til starfa fvrr en
um áramót, þar eð brezka setuliðið lagði undir sig skólann við komu
sina hingað og fór ekki úr honum aftur fyrr en í desember, og þurfti
húsið þá rækilegrar hreinsunar við. Lýsisgjafir hefir eigi þótt ástæða
lil að viðhafa í skólunum. í Loðmundarfirði hefir farskólinn ekki
verið starfræktur síðustu árin.
Rerufj. Skólaskoðun í byrjun skólaárs. Börnin í barnaskóla þorps-
ins eru athuguð um miðjan vetur og í lok skólaárs. Skólastaðir víða
dágóðir, eftir því sem búast má við í heimahúsum. Skólastofu bætt
við barnaskólann hér.
Hornafj. Barnaskóli reistur á Höfn sumarið 1939. Er vandað hús
með stórum leikfimissal, bjartri og rúmgóðri kennslustofu, stórum
gangi, þvottaklefa, klefum fyrir vatnssalerni, sem þó eru ekki komin
enn þá, og kjallara fyrir miðstöð og kolgeymslu. Pln baðklefa vantar,
sömuleiðis handavinnuherbergi og kennarastofu með bólca- og áhalda-
geymslu. Miðstöð og' ókomin, en er ráðgerð við fyrstu hentugleika.
Á Mýrum var á sama ári stækkað og endurbætt- fundarhús sveitar-
innar og komið þar upp góðri kennslustofu. Var það að miklu leyti
unnið í sjálfboðavinnu.
Vestmannaeyja. Skólabörnum fer yfirleitt fram í þrifnaði, ólíkt
hreinni á höndum og í hári, en var hér áður fyrr. Skólabörnum gefið
lýsi í skammdeginu.
Eyrarbakka. Svo er að sjá, sem skólahöldurum ýmsum sé nokkuð
tamt að skjóta sér undan skólaeftirliti héraðslækna, ef læknarnir
sjálfir leita ekki fast eftir í þeim sökum.
Keflavíkur. 2 hreppar hafa alveg ófullnægjandi skólahús.
12. Barnauppeldi.
Verkefni barnaverndarnefnda hefir mjög aukizt vegna dvalar hins
crlenda setuliðs í landinu, sem hlaut að reynast mörgum unglingum,
einkum unglingstelpum, siðferðileg ofraun. Læknar ræða þetta nýja
viðhorf lítið, enda lítt séð, er árinu lýkur.
Læknar láta þessa getið:
1) Að pessu leyti er það fyrst og fremst liéraðslæknirinn sjálfur.