Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Qupperneq 128
126
þess að g'era gat á mann — þess eins. Nú Iægði og birti óðum og sást
til skipsins. Óskaði ég, að þess yrði freistað að ná í Brynjólf, sem var
gert og gekk vel, enda lægði nú skjótt, og skipið var afgreitt. Við
Brynjólfur hófumst þegar handa, svæfðum konuna og opnuðum.
Allt var, eins og við bjuggumst við. Tuba var sprungin utan til og
kökltur þar á stærð við andaregg. Við gerðum að þessu í snatri. Síðan
jusum við mjög miklu blóði og einkum lifrum upp úr holínu og
þerruðum eftir föngum. Botnlangi var tortryggilegur, og þótti okkur
rétt að gera eina ferðina. Hann reyndist þó illur viðfangs. Við urðum
að losa hann rangsælis. Ekki tafði þetta okkur þó vfir 10 mínútur.
Við Brynjólfur skiptum að jöfnu skömin og heiðri, og síðan fór
skipið þegar. Konan vaknaði fljótt og leið eftir atvikum sæmilega,
en þó fór svo, að næstu 2 sólarhringa ætlaði ég henni varla líf. Heimili
þetta var fátækt og undra snautt hluta þarna hjá sjúklingnum. Það
var nú næstu nótt, að mér sýndist lífsvon hverfandi. Fáliðað var og
þreytt það, sem var. Eg fór fram í eldhús. Þar var blikkfata, full af
tærasta lindarvatni. í búrskápnum fann ég í ryðguðum bauk ögn af
óálitlegu venjulegu matarsalti. Ég lét svo Htið af því í sprautu, sem
tók 25 in3, fyllti af vatni síðan. Þessari „physiologisku" upplausn
sprautaði ég í konuna, ekki einni sprautu, heldur tugum — undir
liúð. Ég gerði meira að þessu síðar — þó hreinlegar. Eg er ekki í
nokkrum vafa um, að þetta bjargaði lífi konunnar, og ekki hafði
hún af því nokkurt mein. Það kom ekki einu sinni þroti í einn stungu-
stað. Konan var lengi að ná sér, enda nær dauða en lífi, er skurður
var loks gerður. En hún fékk góða heilsu og' hetri en fyrr.
15. Slysavarnir.
Auk slysavarnarstarfsemi þeirrar, sem áður hefir verið rækt hér á
landi, þótti nú einnig við þurfa að liefja undirbúning' undir varnii
gegn hættum af beinum hernaðaraðgerðum, einkum loftárásum.
Á þessu ári var þó lítið gert annað en styðja að því, að sem allra flest
börn úr Reykjavík og öðrum setuliðsstöðvum yrðu vistuð utan þeirra
yfir sumartímann.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. í ársbyrjun hóf R. K. I. starfsemi í þá átt að taka að sér milli-
göngu um að koma börnuin héðan úr bænum út á land til sumar-
dvalar. Eftir hernámið var það talin knýjandi nauðsyn að koma
börnum burt úr bænum, og leituðu því barnaverndarráð og R. K. í.
lil ýmissa líknarfélaga bæjarins í þessu efni. Var þessari málaleitun
vel tekið og stofnuð 9 manna nefnd, sem svo kaus þriggja rnanna
framkvæmdarnefnd. Alls munu hafa verið útvegaðir dvalarstaðir
íyrir rúmlega 600 börn. Dvalartíminn var 2 mánuðir.
Flateyjnr. Deild úr Slysavarnarfél. fslands, að nafni Vestureyja-
sveit, starfar í hreppnum.
Bíldudals. 2 deildir úr Slysavarnarfél. íslands, karla og kvenna, og
eru báðar með nokkru lífsmarki enn þá.
Sauðárkróks. Slysavarnarfélög (deildir) starfa 2 á Sauðárkróki
og vinna að fjársöfnun til slysavarna.