Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Síða 132
130
nægileg'ur matarforði til þess, að þessi ófénaður geti lifað bezta
lífi. Mýs sjást hér varla.
Öxarfí. Veggjalýs og húsasldtir eru hér ekki til. Slæðingur af rott-
um á Raufarhöfn og sums staðar á Sléttu.
Seyðisfj. Veggjalýs og húsaskítir ekki til, en rottugangur er rnikill.
Venjulega er eitrað einu sinni á ári, og hverfa þá rotturnar, a. m. k.
um tíma. Mýs þrífast vist ekki, þar sem rottugangur er.
Berufj. Rottur víða í sveitinni og gera sums staðar talsverðan usla.
Hér í þorpinu verður aldrei vart við rottur, þótt vitað sé, að þær hafi
stundum flutzt hingað, en þær hafa aldrei ilenzt, enda er sagt, að
það séu gömul álög, sem vernda þorpið fyrir þeim.
Hornafj. Ekki með vissu kunnugt um veggjalýs nema á 1 bæ í Nesj-
um. Voru á gamla bænum á Hólum, fluttist nokkuð í nýja húsið, en
tókst að útrýma þeim. Rottur ekki til í héraðinu og mýs mjög óvíða
í húsum.
19. Störf heilbrigðisnefnda.
Á árinu voru sett ýtarleg lög uin heilbrigðisnefndir og heilbrigðis-
samþykktir, og' er gert ráð fyrir, að allar heilbrigðissamþykktir í
landinu verði endurskoðaðar og samræmdar ákvæðum laganna. Var
ætlazt til, að flýtt yrði og þó vel vandað til nýrrar heilbrigðissam-
þykktar í Reykjavík í því skyni, að hún yrði stðan fyrirmynd ann-
arra samþykkta. Því iniður hefir Reykjavíkursamþykktin orðið síð-
húnari en skyldi og miklum mun ineira en búizt var við.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Löggiltar voru 5 fisksöluhúðir, 1 mjólkurbúð, 3 kjötbúðir
og 1 ostabúð. Einni mjólkurbúð var neitað um löggildingu. Leyft var
að taka upp veitingar á 37 nýjuni stöðum, en þess skal getið, að
flest þau leyfi voru aðeins veitt til bráðabirgða og með því skilyrði,
að heilbrigðisnefnd gæti látið loka þeim fyrirvaralaust, ef henni
þætti ástæða til. Var þessi aðferð viðhöfð einkum vegna þess, að
nefndin vildi ekki standa i vegi fyrir, að sem flestir gætu hagnazt af
setuliðinu og því voru ekki ætíð gerðar eins strangar kröfur til hús-
næðisins og ella mundi.
Borgarnes. Heilbrigðisnefndin finnur að, ef hún verður vör við
óþrifnað utan húss. Mesta áhyggjuefni hennar eru vatnsbólin, grunn
og óhæfileg.
Bíldudals. Hin nýkjörna heilbrigðisnefnd settist á rökstóla síðasl
liðinn vetur og samdi nýja heilbrigðisreglugerð fyrir hreppinn, sem
enn er þó óstaðfest. Hefir nefndin látið nokkur smámál til sín taka.
Yfirleitt er aðfinnslum og' umbótakröfum fremur stirðleg'a tekið, og'
þykir nefndarmönnum starfið heldur óvinsælt og argsamt.
Regkjarfj. Heilbrigðisnefnd engin starfandi í héraðinu né nokkur
önnur starfsemi í þá ált.
Blöndnós. Heilhrigðisnefndir kauptúnanna fara á hverju vori í
eftirlitsferð um allar lóðir og finna að því, sem ábóta vant er um, að
því er þrifnað og mngengni snertir. Þetta hefir gefizt mjög vel.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd Sauðárkróks leit eftir þrifnaði utan
húss, en mikið vantar á, að umgengni sé góð, og þykja mörgum af-