Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 24
22
Læknar láta þessa getið:
Rvík. 32 ára gömul fjölbyrja hafði fætt heima, en var lögð i sjúkra-
hús með pyaemia hinn 25. ágúst og andaðist þar 8. október. Fæddi
einhvern fyrsta daginn í ágúst. Fæðingin langdregin og nokkuð erfið.
Hafði verið subfebril í sængurlegunni, en fór á fætur ca. 2 vikum
cftir barnsburðinn. Nokkrum dögum síðar veiktist hún þastarlega
með ÖIl einkenni pyaemia. Þótt nokkuð langur tími sé liðinn frá fæð-
ing'u, verður að setja sjúkdóminn í sainband við hana.
Patreksfí. 22 ára fjölbyrja, lengi veik á undan fæðingu af cysto-
pyelitis og var með 39,5°, áður en hún fæddi. Sjúklingurinn lá allt
sumarið fram á haust með hita. Fékk þá dagenan og fór eftir það
sinábatnandi.
Hóls. 34 ára primipara. Fylgjan losuð með hendi. Konan ekki
svæfð vegna blóðleysis. Fékk lágan sótthita í ca. 3 vikur og útferð
nokkra. Heilsaðist síðan sæmilega. Hefur þó kennt taugaveiklunar
síðan.
Ólafsfí. 2 tilfelli á árinu. Önnur konan fékk hita viku eftir fæð-
ingu, sem hafði gengið vel. Hiti hvarf eftir nokkurra daga prontósíl-
meðferð. Hin konan fékk hita, um 40°, á þriðja degi með skjálfta og
illri Iíðan. Við prontósilmeðferð féll hitinn fljótlega niður í 37,5°, en
hækkaði aftur eftir viku, og varð þá vart eggjahvítu og graftar í
þvagi. Við áframhaldandi ])rontósílmeðferð varð konan hitalaus eftir
aðra viku.
Svarfdívla. 2 lilfelli í Hrísey í júlí og ágúst. í hvorugu tilfellinu
nokkur fæðingaraðgerð og orsakir ókunnar.
Seijðisfí. Kona fékk veikina eftir erfiða fæðingu á sjúkrahúsinu,
komst alveg i dauðann, fekk bæði phlegmasia alba dolens og infarctus
pulmonum. Álít ég', að prontósíl per os og i. m. hafi bjargað henni.
6. Gigtsótt (febris rheumatiea).
Töflur II, III og IV, 6.
Sjúklingafíöldi 1932—1941:
1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941
Sjúkl......... 167 128 147 160 91 97 105 79 75 85
Dánir ........ 1 1 1 2 2 1 1 „ 1
Læknar láta þessa getið:
Ögur. 1 tilfelli um sumarið, en hið eina, sem ég hef séð hér, síðan
ég kom í héraðið fyrir 3% ári. Engir fylgikvillar.
Akureijrar. Getið um 1 tilfelli í mánaðaskýrslum lækna, en efalaust
munu einhver fleiri létt lilfelli hafa komið fyrir, þótt læknarnir hafi
ekki gelið þeirra.
Öxarfí. 3 fengu polyarthritis rheumatica acuta í des., 2 gamlar kon-
ur og drengur um fermingu, hvert í sinu héraðshorni, og aldrei hef
ég séð þennan sjúkdóm smita, þótt á farsóttarskrá sé.
Segðisfí. Ekki gert vart við sig' hér í mörg ár. Nú veiktist ungur
maður og var þungt haldinn, en náði sér alveg.