Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 28
26
felli, sem frekar máttu teljast undir inflúenzu en venjulega kvef-
sótt, því að í 2 skipti fylgdu nokkur einkenni frá taugakerfi.
Sauðárkróks. Gengur febrúar—apríl, að líkindum hefur eitthvað
af kvefsótt þeirri, er gekk í janúar, einnig verið inflúenza. Allmargir
fengu lungnahólgu upp úr veikinni.
Hofsós. Allútbreidd vormánuðina, og urðu margir þungt haldnir.
ólafsfj. Barst hingað í marzmánuði. Almennur borgarafundur var
látinn skera úr um það, hvort verja skyldi héraðið, og var samþykkt
að viðhafa engar varnir. Mátti segja, að farsóttin væri injög létt, og
liún dvínaði fljótt. Inflúenza gekk hér mjög slæm árið 1939, og má
vera, að eitthvert ónæmi hafi enzt frá þeirn tíma.
Svarfdæla. 11. febrúar var ineð samþykki heilbrigðisstjórnarinnar
sett samgöngubann við héraðið til þess að reyna að hindra, að in-
flúenza bærist inn í héraðið, en hún var þá komin til Akureyrar.
ö. marz var bannið upphafið, og um miðjan þann mánuð fór veikin
að gera vart við sig, fór ekki mjög geyst yfir, og lagði yfirleitt ekki
alla á heimilum i rúmið í einu, heldur voru víða þeir, sem fyrst
veiktust, komnir á fætur, þegar aðrir tóku að leggjast. Mikið kvef
fylgdi, sumt allþungt lungnakvef, og nokkrir fengu lungnabólgu.
Nokkuð bar á eyrnabólgum og taugaverkjuiu á eftir. Enginn dó úr
veikinni eða afleiðingum hennar.
Alcureyrar. Barst hingað frá Rvík í febr., en var væg' og gekk frem-
ur hægt yfir. Helztu fylgikvillar hennar voru eyrnabólgur. Ekki voru
mikil brögð að lungnabólgu í sambandi við faraldur þenna, en þó
mun 1 barn hafa dáið úr lungnabólgu, er það fékk upp úr inflú-
enzunni.
Höfðahverfis. Inflúenza barst hingað fyrst í apríhnánuði frá Ak-
ureyri. Hér hafði verið sett algert samgöngu- og samkomubann um
ca. 1 Vá mánaðar tíma. Því var af létt síðast í marzmánuði, þar sem
öll inflúenza var sögð af rokin, cn skömmu síðar virtist liún færast
aftur í aukana þar, enda barst hún strax hingað, er banninu var aí
létt. Illmögulegt hefði verið að hafa það lengur, þar sem útgerð var
að hefjast hér, og allt til hennar þarf að sækja lil Akurevrar. Gekk
inflúenzan hér yfir, en yfirleitt frekar væg. Sjúklingarnir lágu stutt
og voru fljótir að ná sér aftur.
Reykdæla. Reynt að verjast inflúenzunni með samgöngu- og sam-
komubanni, og tókst að mestu. Þó barst luin 2 sinnum inn í héraðið.
en náði í hvorugt skij)tið verulegri útbreiðslu. Hún lagðist allþungt a
suma, sem veiktust, og nokkrir fengu lungnabólgu. Auk þess fékk
einn maður virka lungnaberlda upp úr infhienzunni og fór á Krist-
neshæli.
Öxarfj. Talið er, að inflúenzan bærist til Raufarhafnar í byrjun
marz og í apríl yrði hún nokkuð útbreidd í Kelduhverfi og færi síðan
um héraðið, en ekki almennt yfir. Þessi marzfaraldur á Raufarhöfn
var vægur og aðallega á börnum, svo að til rúmlegu kæmi. Svo var eins
og hún herti á sér þar í apríl og varð allþung á sumum fullorðnum
þar og víðar í héraðinu. Sumir héldu pestirnar tvær, með millibih.
Var sagt, að svo hefði einnig farið að á Akureyri, og vist er um það,
að þetta var sama veiki og á Akureyri. En aldrei veit ég, hvort