Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Side 32
ao
2. U m t a k s ó 11:
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Allmiklu meira bar á taksótt en 1940, en ekki líkt því eins
mannskæðri og árið áður.
Bíldndals. Enginn dó úr lungnabólgu.
Þingeyrar. Af lungnabólgu (beggja tegunda) eru bókfærð 9 tilfelli-
Munu þó tæplega öll bókfærð. Yfirleitt hefur virzt nijög mikið af
lungnabólgu í og upp úr kvefslæðingi þeim, er gengið hefur allt árið.
Þau ein tilfelli hafa verið skráð, sem hlustun hefur gefið ákveðnar
upplýsingar um. Hins vegar er greining ónákvæmari, síðan dagenanið
kom til sögunnar. Það er gefið þegar í byrjun veikinnar, ef um grun
er að ræða, og hefur reynzt sem fyrr að eyða sótthita á 1—2 sólar-
hringum. Getur þetta valdið því, að veikin verði aldrei ákveðin við
hlustun. Síðan dosering varð ákveðnari, hafa verið gefnir stærri
skammtar en áður. Virtist það jafn óhrigðult með smærri skömmtum.
Ókostur við stóru skammtana eru uppköstin, sem ofast fylgja þeim.
Hef ég tekið það ráð að gefa smærri skammt annan hvern klukku-
tíma og reynzt vel. Annars verður þetta lyf seint nógsamlega vegsamað.
Það virðist bjarga jafnvel níræðum gamalmennum. Annars virðist
mér margt benda til, að verksvið þess lyfs eigi eftir að stækka, frá því
sem nú er. T. d. gengur hér nú talsvert þung inflúenza. Hef ég notað
dagenan, eða reynt i mörgum tilfellum af henni, þar sein ég hef verið
sannfærður um, að eigi væri um lungnabólgu að ræða. Reynist það
specificum í þeim tilfellum, sem leggjast á öndunarfæri. Hins vegar
gagnslaust í hinum, sem leggjast á meltingarfærin. Mætti af þessu
ráða, að um blöndunarinfectio væri að ræða í öndunarfærum.
Ögur. 1 tilfelli, allþungt á öldruðum manni. Batnaði skjótt við
dagenan.
Miðfj. Óvenju mörg tilfelli. Engir dóu.
Blönduós. Batnaði fljótt og vel við M & B, nema í eitt skiptið, þar
sem gefa varð það i nokkra daga áður en það hreif.
Sauðárkróks. Oft verður ekki greint á milli taksóttar og kveflungna-
bólgu, einkum ef læknir skoðar sjúklinginn aðeins einu sinni. Eng-
inn dó. Má telja það mikla blessun að hafa slíkt lyf sem tabl. M & B
(593 við lungnabólgu. Sé það gefið nógu sneinma, fellur hitinn venjn-
lega á fyrsta eða öðrum sólarhring, að því er mér hefur reynzt.
Hofsós. Mörg tilfelli á árinu, alloftast fvlgikvilli kvefsóttar eða in-
flúenzu. Menn inega helzt ekki vera að því að liggja úr sér slíka kvilla,
vegna anna, og þá er taksóttin yfirvofandi. Dagenan er afbragðs lyL
en ekki einhlítt. Miklar umkvartanir uin vomitus, þegar það er tekið
per os, og þó að natrii bicarbonas-gjöf samhliða dragi nokkuð nr,
verpur þetta nokkrum skugga á ágæti lyfsins.
Ölafsfj. Mörg tilfelli af taksótt komu fyrir í desember. Yar enn sem
fyrr, að M & B 693 reyndist prýðilega. Vegna lyfsins er taksóttin, sem
mér hefur ævinlega þótt leiðinlegur og erfiður sjúkdómur, í flest-
um tilfellum viðráðanleg og öll önnur en áður var.
Akureyrar. í öllum tilfellum lungnabólgu hafa læknar notað da-
genan M & B 693 og jafnan með bezta árangri.
Reykdæla. Talsvert bar á taksótt, og voru sumir sjúklingarnir þnngt