Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 78
varð ég því að sitja yfir í þorpinu. Alls var mín vitjað á árinu til
8 sængurkvenna. Aldrei neitt alvarlegt að, og ekki þurfti nema smá-
aðgerða við. Konur og börn lifðu öll.
Hóls. Fylgja var eitt sinn fastgróin á stóru svæði. Gekk erfiðlega
að losa og ná henni með hendi. Hitavott fékk konan eftir á og út-
ferð nokkra. Hefur náð sér nolckurn veginn. Hjá annari konu sat
fylgja fyrir á kafla. Himnur sprengdar, blæðing hætti, fæðing gekk
síðan vel, og konunni heilsaðist vel.
tsajj. 2 tangarfæðingar á árinu og einu sinni gerður keisaraskurður
vegna placenta praevia.
Ögur. Fæðingar með langflestá móti. 5 sinnum vitjað til sængur-
kvenna. Tvisvar engin ljósmóðir viðstödd. Einu sinni var um að ræða
erfiða fæðingu hjá aldraðri frumbyrju og einu sinni hríðaleysi hjá
aldraðri fjölbyrju. 1 kona var flutt til ísafjarðar og þar gerður á
henni keisaraskurður vegna þröngrar grindar. Öllum hörnum og
konum heilsaðist vel.
Hesteyrar. 18 ára primipara. Fylgja föst.
Miðff. Vitjað til sængurkyenna 14 sinnum. Ekkert erfitt tilfelli.
3 fósturlát tekin til meðferðar á sjúkrahúsi. 1 barn fætt með skarð
í vör beggja megin og klofinn góm á mjög háu stig'i. Engra fóstur-
láta er getið í skýrslum Ijósmæðra á árinu.
Blönduós. Tvíburafæðing var ein á árinu. Bæði börnin með sitjand-
ann á undan. Hjá einni konunni tvær fæðingar sama árið. Eitt barn
nokkuð vanskapað, fingur og tær samvaxnar. Fæddist andvana. Ljós-
mæður telja aðeins eitt fósturlát, en auk þess var ég sóttur í eitt
skipti til frumbyrju, sem levstist höfn. Abortus provocatus var eng'-
inn, mér vitanlega.
Sauðárkróks. 20 sinnum á árinu var mín vitjað til fæðinga. Venju-
lega var um það að ræða að deyfa konuna eða herða á linum hríðum.
Einu sinni gerð episiotomia. 1 þríburafæðing kom fyrir á árinu hjá
38 ára gamalli III-para. Fyrsta barnið var fætt, er til mín var sent.
Var það í hvirfilsstöðu. Hríðar voru linar á eftir, og varð að herða á
þeim og sprengja hiinnur. Koin þá niður fótur, og' var gerður fram-
dráttur. Var barnið líflítið, en brátt tókst að lífga það. Meðan læknir
reyndi að lífga barn nr. 2, hafði ljósmóðir orð á því, að legið væri
óeðlilegt og drægist ekki saman. Kom þá í ljós, að enn var eitt barn
eftir, og var það í þverlegu. Varð gerð á því vending og framdráttur, og
var það með fullu Hfi. Bæði kona og börn lifðu og heilsaðist vel, en
börnin voru fædd nokkru fyrir tímann. 1 kona dó vegna blæðinga i
sambandi við placenta accreta. 4 sinnum var mín vitjað til kvenna
vegna aborta. 1 kona fékk mola hydatidosa, 22 ára gömul V-para.
Gerð evacuatio uteri. Brátt fór að bera á óreglulegum blæðingum.
Gerð hysterectomia totalis, og var í slímhúð uterus að sjá volt um
byrjandi chorionepithelioma. Hefur síðan heilsazt vel.
Hofsós. Oftast um að ræða sóttleysi og þá dælt inn hríðaukandi
lyfjum. 1 vending á fæti og framdráttur. Töng notuð tvisvar. 1 kona
í Hóla- og Viðvíkurumdæmi dó af barnsförum, fjölbyrja, sem í þetta
sinn ól silL 10. barn. Ljósmóðir segir svo frá: Þegar barnið var fætt,
en það gekk vel, tók konunni að blæða mikið. Brugðið var við og