Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 81
79
að ég var beðinn hins sama árið áður, en fann ekki heldur ástæðu
til að sinna því.
Mýrdals. Aldrei vitjað til sængurkonu.
Eyrarbaklca. Kona 45 ára, II-para, leið rit af í svefni skömrnu eftir
eðlilega fæðingu án deyfingar og án þess að borið hefði á öðrum
einkennum en lítils háttar uppsölu í byi’jun fæðingar og aftur á eftir
henni, svo og erfiðum andardrætti í svefninum.
Grimsnes. 9 sinnum vitjað vegna fæðinga. I einu tilfelli var um
placenta accreta að ræða. Varð að sækja fylgjuna með hendi. Kon-
unni heilsaðist vel. í öðru tilfelli var vatn óvenju mikið hjá primi-
para og hriðir sama og engar. Jukust þær nokkuð, eftir að ég' gat
sprengt himnurnar. Eftir nokkra klukkutíma féllu hríðar niður
aftur, konan orðin örmagna, enda liðnir fullir 2 sólarhringar frá
byrjun fæðingar. Gat ég þá náð barninu með töng. Konu og barni
heilsaðist vel. Ljósmæður geta ekki um nein fósturlát í skýrslum
sínum. Hef ég haft 5 tilfelli til meðferðar. 2 af þeim voru septisk.
Batnaði við prontosil. Einu sinni varð ég að gera excochleatio vegna
abortus incompletus og mikilla blæðinga. 1 barn fæddist injög van-
skapað, með klofinn góm og efri vör, auk þess pes varaoequinus á
báðum fótum, svo að tærnar sneru nálega aftur. Barnið dó stuttu eftir
fæðingu. Móðirin er iinbecil. Að fengnu leyfi var svo gerð á henni
vönun á Landsspítalanum nokkru síðar.
Iieflavíkur. Fæðingar vfirleitt gengið vel. Læknis 13 sinnum vitj-
að til fæðandi kvenna, en engin meiri háttar fæðingaraðgerð gerð.
Mest deyfingar og hríðaukandi sprautur. 1 fósturlát og leg skafið.
Konunni heilsaðist vel.
V. Slysfarir.
Slysfaradauði og sjálfsmorð á síðasta áratug leljasl sem hér segir:
1932 1933 1934 1935 193fi 1937 1938 1939 1940 1941
Slysadauði .. 53 112 55 90 102 51 75 55 93 195
Sjálfsmorð .. 4 16 12 8 15 9 15 12 12 8
Árið mun vera eilt hið mesta slysaár, sem yfir landið hefur gengið.
Næstu 10 árin fyrirfarandi misstum vér af slysförum að meðaltali á
ári 74,3, og höfum vér þá á þessu ári látið fullt stórt hundrað inanna
umfram það, sein venjulegt er. Fer ekki á milli mála, að hér er til að
dreifa hernaðarástandinu og mannfall vort af völdum styrjaldarinnar
þá svo mikið, að hlutfallslega mun fyllilega jafnast við mannfall
sumra hernaðaraðiljanna sjálfra til sama tíma. Engu síður keppast
prestar og aðrir guðs vinir við að vegsama hann dögum oftar fyrir þá
náð, er oss hafi fallið í skaut, að vér sleppum við að fórna blóði voru
á altari styrjaldarinnar. Er ekki að undra, þó að fram hjá mönnum
fari annað afhroð, er vér gjöldum í hildarleiknum, er þetta dylst
mönnum svo gersamlega.
Læknar láta þessa gelið: