Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Side 188

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Side 188
186 sér öll skjöl varðandi mál Sveins Pálssonar, áður en það gaf út bréf það, sem getið var um i upphafi, frá 22. sept. 1787, þar sem Sveinn er algerlega sýknaður af ákæru Stefáns amtmanns Þórarinssonar, enda leyfð variolatio á íslandi, þegar bólusótt gengur í landinu, jafnframt því sem út eru gefnar reglur um framkvæmd aðgerðarinnar og birtar almenningi. Tekur kansellíið óneitanlega frjálslega á málinu með því að binda heimildina til aðgerðarinnar við það eitt, að bólusótt gangi í landinu, án nokkurs tillits til ósýktra landshluta eða héraða, og virð- ist það hafa fallizt á skoðun landlæknis, að útbreiðslu sóttarinnar væri ekki unnt að hefta, ef hún á annað borð næði að berast inn í landið. Einkennilegt er, að kansellíið vitnar í bréfi sínu ekki beinlínis til skýrslu landlæknis um reynslu hans af því að sýkja menn af bólu- sótt með variolatio, heldur til þess, að aðgerðin hafi „paa nogle Steder gaaet saa lykkelig af, at der, iblandt andet, i 0efjords Syssel, af 8 Mennesker, som blev inoculerede, ingen er d0de“. Á þessum árum var þó enginn læknir á Akureyri eða annars staðar í Eyjafjarðarsýslu, og hafa því sennilega leikmenn verið hér að verki, e. t. v. á vegum hinna dönsku kaupmanna, sem þekkt hafa til aðgerðarinnar frá Danmörku. Reglurnar, sem kansellíið setti um framkvæind aðgerðarinnar, gerðu og ekki sérstaklega ráð fyrir því, að læknar inntu hana af hendi. Frá hinum dönsku kaupmönnum gat kansellíið auðveldlega haft fregnir af árangrinum. Er ekki ólíklegt, að vitnað sé til reynslunnar úr Eyja- firði með tilliti til Stefáns amtmanns, sem kæruna hafði sent, en reyndar bera uminæli amtmanns með sér, að hann hefur kunnað full skil á aðgerðinni og gildi hennar, þó að hann teldi í meira lagi hæpið tiltæki Sveins Pálssonar, er í hlut átti ósýktur landsfjórðungur. Vill hann láta setja reglur uin „Koppernes Inoculation i sin vedbþrlige Orden“. Verður ekki annað sag't en afstaða Stefáns amtmanns til þessa máls sé að öllu leyti eðlileg og' skynsamleg. Ekki er tiltökumál, þó að oss þyki nú tiltektir þeirra landlæknis og Sveins Pálssonar í mesta lagi glæfralegar, því að vafasamt er, að þær hafi verið með fullum rökum réttlætanleg'ar, miðað við þekkingarstig þeirra tíma, er þessir atburðir gerðust. Er aðgætandi, að menn þekktu þá þegar sýkingarhætti bólusóttarinnar og sóttvarnargildi einangr- unar og samgönguvarúðar, er um það var að tefla að hefta út- breiðslu sóttarinnar. Mun því mega telja, að kansellíið hafi tekið í mildasta lagi á málinu, og vissulega hefði ekki mátt minna vera, úr því að fjórðungslæknir sat í Skagafirði (Jón Pétursson í Viðvík), en hann hefði verið gerður hér að milligöngumanni. Að sama brunni ber það, að hæpin hafi verið sú ráðstöfun kansellísins að heimila va- riolatio á íslandi, jafn-skilyrðislaust sem gert var, og mun þar hafa komið til greina ókunnugleiki hinna erlendu stjórnarvalda á raun- verulegri stærð landsins og fjarlægðum milli byggðarlaga, sem hvort tveggja gat stutt að því, að framkvæmanlegar væru með sæmilegum árangri tiltölulega einfaldar sóttavarnarráðstafanir. Skín í það i bréf- um Stefáns amtmanns og landlæknis, að báða hefur órað fyrir þessu, þó að hvorugur taki málið föstum tökum. Ráðstafanir þessar drógu þó engan dilk á eftir sér, því að með hinu margnefnda kansellíbréfi er úti sagan um variolatio á Islandi. Bólu-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.