Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Qupperneq 80
1956
— 78 —
tvisvar á árinu, i marz—apríl og í
desember, og voru það þá aðallega
börn, sem tóku veikina. Mörg urðu
mikið veik, og einu varð hún að bana,
5—6 mánaða barni.
Bakkagerðis. Inflúenza gekk i næstu
héruðum fyrri hluta ársins og mun
hafa komið á 2—3 bæi i Hjaltastaða-
þinghá. Borgfirðingar vörðust.
Seyðisfj. Faraldur gaus upp í marz
og aftur í desember. Talið er, að far-
aídurinn í marz hafi orðið 2 gamal-
mennum að bana.
Nes. Mjög viðtækur faraldur í marz,
fór ört hjaðnandi i apríl og dó að
mestu út snemma í maímánuði. Flest
tilfellin væg og án alvarlegra fylgi-
kvilla.
Biiða. Barst í héraðið í marzlok frá
Hornafirði. Var fremur væg. í sam-
bandi við hana nokkur lungnabólgu-
tilfelli.
Iíafnar. Barst hingað frá Reykjavík
6. marz. Veiktust 105 fyrstu fimm
dagana, gekk síðan hægar yfir og var
lokið snemma í apríl. Lagðist þungt á
alla, einkum þó gamalmenni.
Vikur. Kom upp í marzmánuði, en
flest tilfellin skráð í apríl, enda þá að
ganga i Skógaskóla. Fór siðan minnk-
andi fram i ágúst, en fuðraði aftur
upp í desember (sbr. kvefsótt).
Vestmannaeyja. Veikin talin komin
með Færeyingum í febrúarlok og náði
skjótt mikilli útbreiðslu, en rénaði
siðan jafnskjótt aftur, svo að furðu-
lítið truflaði vertíð, og var einnig
fremur væg.
Hvols. Náði aldrei mikilli útbreiðslu.
Flest tilfelli í nóvember og desember,
og komu flest þeirra fram sem adeno-
pharyngitis. í smábörnum, sem veikt-
ust, bar í stöku tilfelli á vægum me-
ningismus.
Hellu. í febrúarmánuði gekk inflú-
enzufaraldur, sem lagðist einkum
þungt á fólk i þéttbýlli hverfum, svo
sem Þykkvabænum, og þó yfirleitt
ekki þungt. Fylgikvilla varð lítið vart.
Eyrarbakka. Gerði vart við sig í
febrúar, jókst mjög i marz og april og
fjaraði út i maí. Nokkuð um fylgi-
kvilla.
Hafnarfj. Faraldur byrjaði hér um
mánaðamótin febr.—marz og stóð
fram í apríl. Þessi faraldur var ekki
verulega þungur, en allmargir sýktust.
Vantaði áberandi marga i skólana um
tíma. Ekki er mér kunnugt um neinar
alvarlegar afleiðingar þessa faraldurs.
11. Heilasótt (meningitis cerebro-
spinalis epidemica).
Töflur II, III og IV, 11.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 7 5 12 9 76
Dánir „„141
Óvenjuleg og ólíkindaleg brögð eru
að skrásetningu heilasóttar á árinu,
enda hæpið mark takandi á. Sótt-
lcveikjurannsókn er ekki til að dreifa,
nema ef vera kynni i einstaka tilfelli
í Reykjavík. Má reyndar fullyrða, að
í héruðum, þar sem faraldurs þessa
kvilla er getið, hafi verið ruglazt á
honum og meningitis infectiosa af
öðrum og óskýrgreindum uppruna,
sem allvíða gerði vart við sig, eins og
hér á eftir verður gerð grein fyrir.
Á Bæjarspitala Reykjavikur lágu á
árinu ekki færri en 42 með ýmiss
konar meningitis acuta, án þess að
nokkurn tíma væri greind meningitis
cerebrospinalis meningococcica, þar
af 27, sem kölluðust hafa meningitis
serosa.
Akranes. Verður ekki vart af völd-
um meningococca, svo að vitað sé, en
faraldur kom upp af meningitis af
öðrum uppruna, eins og greint mun
verða frá hér á eftir.
Reykhóla. Tvitugur piltur veiktist í
október. Varð fljótt einkennalaus við
súlfa- og achromycíngjöf. Nú albata.
Blönduós. 6 ára drengur úr Höfða-
kaupstað var lagður inn á spitalann
með háan hita, vott af krömpum og
önnur greinileg heilaeinkenni. Var
fyrst gefið combiotic og síðar achro-
mycin, og var útskrifaður heilbrigður
eftir 16 daga. Sóttkveikjurannsókn var
ekki gerð, svo að ekki er með öllu
víst, hvort um meningococcasmitun
hefur verið að ræða, en önnur ein-
kenni bentu til þess.
Sauðárkróks. 2 tilfelli (aðeins ann-
að skráð). Batnaði vel.