Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Síða 163
— 161 —
1956
261889 m3. í húsum þessum eru alls
705 íbúðir og skipting þeirra eftir her-
bergjafjölda, auk eldhúss, sem hér
segir: 1 herbergi 2, 2 herbergi 71, 3
herbergi 204, 4 herbergi 195, 5 her-
bergi 163, 6 lierbergi 48, 7 lierbergi
12, 8 herbergi 7, 9 herbergi 1, 10 her-
bergi 2. Auk þess eru 78 einstök her-
bergi. Auk nefndra íbúðarhúsa var
lokið við byggingu 12 iðnaðar-, verk-
smiðju- og vörugeymsluhúsa og 6
aukningar á eldri húsum, samtals
4933,0 m2, 5 skóla, kirkna og félags-
heimila, samtals 3246,0 m2, 5 stál-
grindahúsa, samtals 4331,7 m2, 215
bílskúra og vinnustofa og 6 aukninga
á eldri byggingum af þeirri gerð, sam-
tals 10586,6 m2. Alls hafa þá verið
byggðir 44768,1 m2 af steinhúsum,
2334,5 m2 af timburhúsum, 4331,7
m- af stálgrindarhúsum, samtals
51434,3 m2. A árinu var haldið á-
fram skráningu á íbúðarhúsnæði í
fleykjavik. Lokið var skoðun og skrán-
ingu á öllum herskálaíbúðum, skrán-
mgu íbúðarskúra var langt komið, og
hafin er skráning á kjallaraíbúðum.
A árinu voru m. a. framkvæmdar 136
húsnæðisskoðanir samkvæmt beiðni
íbúanna og gefin út vottorð um ástand
húsnæðisins. Flestar eru beiðnir þess-
ar um skoðun á íbúðum í herskálum
°g kjöllurum, og er um þær beðið
aðallega i sambandi við umsóknir um
ibúðir eða um lán til ibúðabygginga.
Að tilhlutan heilbrigðisnefndar voru
hreinsaðar 627 lóðir, þar af hreinsuðu
vinnuflokkar bæjarins 341. Rifnir voru
46 herskálar og 65 skúrar. Ekið var
1129 bílhlössum af rusli á haugana á
vegum lóðahreinsunarinnar, þar af
160 úr herskálahverfum. Útisalerni
við ibúðarhús voru i árslok 82. í her-
skálahverfum og á vinnustöðum voru
útisalerni 169. Fjöldi útisalerna alls er
Pvi 251, og hefur þeim fækkað um 27
a arinu. Sorphreinsun var framkvæmd
vikulega, eins og áður. Hreinsunar-
svæðið var stækkað á árinu, og var
tekin upp hreinsun i Smálöndum og
a Selás- og Árbæjarblettum. Nær þá
hreinsunin til alls þéttbýlis i bæjar-
landinu. í notkun voru í árslok 15065
^orpílát. Ekið var á sorphaugana 19521
bilförmum af sorpi. Sorpmagnið var
um 114373 m3, og var þyngd þess á-
litin vera um 20400 smálestir. Unnið
hefur verið að smíði véla i sorpeyð-
ingarstöðina, en byggingarfram-
kvæmdir hefjast væntanlega næsta
vor.
Akranes. Allmikið var byggt á ár-
inu. í smíðum voru 74 íbúðarhús með
138 íbúðum. 55 íbúðanna var það
mikið lokið á árinu, að þær voru
teknar í notkun. Reistar voru 11 bif-
reiðageymslur, lokið fiskverkunarhús-
um 1894 m2, frystigeymslum 264 m2,
1320 m3, og í smíðum er frystigeymsla
280 m2, 1620 m3. Auk þess er i smið-
um stór og mikil sementsverksmiðja.
Gufubaðstofan við Bjarnalaug var end-
urbyggð og fengin til hennar nýr ofn,
en Rauðakrossdeildin hér hafði á sín-
um tima gefið hana.
Ólafsvikur. Húsakynni og þrifnaður
fara æ batnandi. Á síðustu árum hafa
verið byggð mörg hús, vönduð að gerð
og fullkomin að tilhögun. Öll hús eru
nú olíukynt og rafknúnar kyndingar
í mjög mörgum.
Stykkishólms. Allmikið byggt af
nýjum húsum, bæði hér i Stykkis-
hólmi og i Grafarnesi, og gert hefur
verið við fjölmörg eldri hús. Nokkur
ný hús hafa einnig verið byggð i
sveitum, svo að húsakostur er yfirleitt
orðinn góður víðast hvar. Á 4 bæjum
hafa verið reistar vatnsaflsrafstöðvar,
sem nægja heimilunum til allrar not-
kunar, og er það ómetanleg framför,
frá þvi sem áður var.
Reykhóla. 2 íbúðarhús i smíðum.
Enn þá eru nokkrir bæir í héraðinu
svo illa húsaðir, að ibúum þeirra staf-
ar hætta af. Viða finnst mér, að hirð-
ingu húsa og viðhaldi sé ábótavant.
Orsakir hirðuleysi og efnaleysi. Ann-
ars eru dæmin nærtæk, þar sem eru
opinberar byggingar hér á staðnum
(að undantekinni Tilraunastöð rikis-
ins að Reykhólum, þar sem saman fer
snyrtileg umgengni og gott viðhald
húsa).
Flateyrar. 2 ný ibúðarhús í smiðum
i Súgandafirði og 1 á Flateyri. Annars
hafa verkamenn, bæði á Flateyri og
Suðureyri, notað góðærin til að laga
lóðir, garða, endurbæta húsakynni sín
með því að setja i þau miðstöðvar-
21